Hlín. - 01.04.1902, Side 70
6o
II.
Þeir, seni takast á hendur að útvega eða selja fólki
skilvindur, þurfa nauðsynlega að vera færir um sjálfir,
að veita verklega áreiðanlega tilsögn í meðhöndlun
þeirra, og að útskýra eðli vélanna, og þýðing og ætl-
unarverk hvers einstaks stykkis í þéim, því að það get-
ur reynzt þess virði til kaupandans, eða allt að því,
sem vélin kostar, og einnig í flestum tilfellum alveg
nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að hún.færi sem mestan arð.
— Þetta er mjög áríðandi atriði. — Eins og þessi krafa
er nauðsynleg, eins ér hún líka eðlileg. Og að því er
eg þekki til, þá er þetta krafa, sem aðrar þjóðir gera
til þeirra, er selja eða útvega fólki skilvindur eða aðrar
vélar. Það dugar ekki að miða framboð skilvindunnar
einungis eða aðallega við þann hagnað, er sala hennar
veitir seljandanum, heldur aðallega við það, hvers virði
hún getur orðið kaupandanum, sem með því að eignast
hana er vanalega að reyna til að bæta h'fskjör sín og
sinna, opt með veikum kröftum. — Það er því mikl u
meira vandaverk að selja fólki skilvindur og
aðrar vélar, en margur ætlar, miklu meira vandaverk,
en að selja t. d. kaffi og sykur eða annan almennan
»búðarvarning«, sem flestir kunna að meðhöndla við-
unanlega, — það er að segja, ef það á að vera gert
ærlega og samvizkusamlega eins og vera ber.
Ennfremur er nauðsynlegt, að þeir, sem útvega skil-
vindur, sem og aðrar vélar, sjái svo um, að einstök
stykki til þejrra (þau, er líkast er, að geti bilað í öllu
falli) séu til sölu á nægilega mörgum stöðum í landinu,
svo að sem hægast veiti að endurbæta það, sem bila
kann í þeim, og þessu jafnframt er og áríðandi, að þær
vélar, sem seldar eru, séu vandaðar og vel kyntar, því
að annars getur verið svo hælt við, að hœtt verði við