Hlín. - 01.04.1902, Page 88
78
sem að sjálfsögðu færir minni arð (vel stundað) en það,
sem landið er bezt til fallið að framleiða og vanalega
færir mestan arðinn, nema því að eins, sem sagt, að
fólkið sé svo margt að það komist ekki alt að hin-
um arðmeiri atvinnugreinum landsins, og standi þannig
á, getur verið alveg rétt að taka með hinar arðminni
starfsgreinarnar líka, þótt af því leiði það, að þær verði
að vernda eða styðja að einhverju leyti á kostnað lands-
manna sjálfra.
Að því er snertir iðnað þessa lands, ef hann ann-
ars á nokkur að verða í komandi framtíð, þá er áríðandi
að gera sér fyrirfram vel ljósar þessar meginreglur í
hverju tilfelli, er hér hefir verið á minnst; þá er nauð-
synlegt að ákveða takmörkin svo rétt og nákvæmt, sem
unt er, til þess að framkvæmdirnar. verði ekki ráðleysis-
flan eða handahófs tilþrif, er lítið bæti úr framkvæmda-
leysinu,- sem nú er. — Seinna verður reynt að gera grein
fyrir, hvers konar iðnaðarfyrirtæki hér ber að rneta mest,
Og hvernig þeim skuli fyrir komið til þess þau gagnist
sem mest o. s. frv.
S. Ii. Jóusson.
Aðferð til að finna lengd beltis.
Legg fyrst saman þvermál beggja hjóla þeirra, sem
beltið er til ætlað. Sú tala, sem þá kemur út, skal marg-
földuð með 3V8, og skal þá deila þeirri tölu, er út kom
með 2. Því næst skal hlutatalan og tvöföld lengdin
milli miðdepla beggja hjólanna lögð saman. Sú tala,
sem þá kemur út, er lengd beltisins. — Við þessu líkan
útreikning er vanalega miðað við þumlunga tal. Enná-