Hlín. - 01.04.1902, Page 90
8o
út kemur, með þvermáli hreyfihjólsins. Verður hlutatalan
þá sú tala, sem að er leitað, n. 1. snúningshraði hreyfi-
hjólsins.
Viðarmálstöflur.
í Ameríku er alt timbur selt eptir ferhyrningsmáli,
miðað við eins þumlungs þykkt, og er það einkar hand-
liæg og hentug aðferð, og langtum nákvæmari og þar
með réttlátari en t. d. sú aðferð, að selja það eftir lengd-
arfetum á mismunandi slump-verði eftir þykkt og breidd,
eins og hér er gert. Kaupmenn hér á landi ættu að
taka þessa viðarmálsaðferð upp; það kostar lítið, en er
blátt áfram nauðsynlegt, bæði fyrir kaupanda og selj-
anda, því að hún er bæði fljótlegri og áreiðanlegri en
nokkur önnur aðferð. Þessar töflur sýna fetatölu í timbri
af öllum vanalegum lengdum, frá 6—32 og 8—24 feta, og
öllum vanalegum þjdcktum og breiddum frá 1x4 til 1x20
og 2x4 til 12x24. Vilji maður t. a. m. vita, hve mörg fet
eru í ferköntuðu tré, sem er 4 þml, á hvern kant, og 16
fet á lengd, þá sér maður, að sú tala, sem er beint til
hliðar frá tölunni 16 til vinstri handar (sem er lengd
trésins) og beint niður undan tölunni 4x4 að ofan (sem
er þykt og breidd þess) er 21.4, sem er hin rétta feta-
tala í trénu, nefnilega 212/s fets, o. s. frv.
Ef maður vill t. a. m. vita, hve mörg fet fást úr
sívölum bjálka, sem er 12 fet á lengd og 24 þml. í gegn-
mál, þá tekur maður þá tölu, sem er beint til hliðar frá
tölunni 12 í fremsta dálki (yzt til vinstri í 3. töflu) og
beint niður undan tölunni 24 að ofan — en það ei vink-
ilhorn frá þessum tveimur tölum. — Sú tala verður 300,
sem táknar það, að úr þeim bjálka fást 300 fet af sög-
uðum við, o. s. frv.