Kirkjuritið - 01.04.1948, Blaðsíða 18
Séra Guðmundur Einarsson,
prófastur.
Fæddur 8. sept. 1877. — Dáinn 8. febr. 1948.
Páll postuli ritar vini sínum á þessa leið: „Þakkir gjöri
ég Guði, er ég rifja upp fyrir mér hina hræsnislausu trú
hjá þér, er fyrst bjó í Lóis ömmu þinni og Evnike móður
þinni, og ég er sannfærður um, að líka býr í þér.“
Þessi orð hafa oft verið í
huga mínum, er ég hefi verið
með séra Guðmundi Einars-
syni. Ég þakka Guði, er ég
minnist þessa vinar, og ég
gleðst yfir því, að hjá honum
fann ég hina hræsnislausu
trú. Hafi nokkuð verið Guð-
mundi fjarlægt, þá var það
hræsnin. Séra Guðmundur
kom alltaf til dyranna, eins
og hann var klæddur. Hon-
um hefði aldrei komið til
hugar að játa þá trú, sem
hann átti ekki. En þegar trú-
in var orðin eign hjartans,
hefði það verið honum mjög
óeðlilegt að þegja um það
bezta, sem hann þekkti. Það er stundum talað um káldan
rétttrúnað og kálda játningu. Þessi kuldi á engan rétt á sér.
En hvers vegna er ekki talað um heiVa trú og heita játn-
ingu? Það hlýtur að hitna út frá því, sem brennur. Séra
Guðmundur var rétttrúaður. En hin rétta trú var um leið
hin heita trú. Það muna allir, að þegar hann talaði um þau
mál, var honum heitt innanbrjósts.
Séra G.iömundur Einarsson.