Kirkjuritið - 01.04.1948, Blaðsíða 58
152
KIRKJURITIÐ
ætlaðir æskulýðnum, og eru ortir undir lögum, sem jafnan
er vitnað til. Náðu þeir einnig ágætlega tilgangi sínum;
ungir 03 gamlir lærðu þá utanþókar og sungu þá bæði við
guðsþjónustur og á mannamótum. M. B. Landstad tók einn-
ig upp úrval úr þeim í sálmabók sína, og er suma þeirra
enn að finna í hinni endurskoðuðu útgáfu hennar.
önnur trúarljóð Petters Dass fjalla um valin efni úr
Gamla- og Nýja testamentinu, svo sem safnið „Aandelig
Tidsfordriv eller Bibelsk Visebog“ (Andleg dægradvöl eða
Biblíuljóð), er einnig varð víðlesið og vinsælt af almenn-
ingi, ekki sízt sálmurinn um loforð Jefta, er sérprentaður
hefir verið ótal sinnum bæði í Noregi og Danmörku. Þá
færði hann í ljóðabúning bækur Ritningarinnar um Ruth,
Esther og Júdit, en af þeirri bók kom aðeins út ein útgáfa
(1723), og er hún þó að ýmsu leyti merkileg, ber vitni hæfi
leika höfundarins til söguljóðagerðar og samfelldrar frá-
sagnar.
Umfangsmest trúarlegra rita hans í bundnu máli er
þó hið mikla sálmasafn hans ,,Evangelie-Sange“ (Guð-
spjalla-söngvar), einn fyrir hvern sunnudag kirkjuársins;
þó að söngvar þessir jafnist eigi á við aðra beztu sálma
hans, er eigi að síður margt vel um þá, enda hafa þeir
komið út í fjöldamörgum útgáfum og því náð mikilli hylli
og útbreiðslu, svo að sumir þeirra hafa verið sungnir fram
á vora daga.
Andleg Ijóð Petters Dass, ekki sízt endursagnir hans úr
bókum Ritningarinnar, bera glögg vitni frásagnargleði
hans, og djarflega horfist hann einnig í augu við raun-
veruleikann í þeim skáldskap sínum. Rétttrúnaðarmaður
var hann að þeirrar tíðar hætti; kenning hans óvæg og karl-
mannleg, starfs- og stríðstrú, heilbrigð og laus við alla
ofurviðkvæmni. Trúartraust hans var á bjargi byggt, en
um annað fram leggur hann áherzlu á trúna sem leiðar-
stjömu hérna megin grafar, túlkar hana í sambandi við
mannlegt líf, kjör og andlegar þarfir þess fólks, sem hann
lifði og starfaði með. Hann yrkir jafnan með safnaðar-