Kirkjuritið - 01.04.1948, Blaðsíða 79
BÆKUR
173
kom út minningarrit hans, sem þeir Björn Magnússon, dósent,
og séra Benjamín Kristjánsson hafa samið. Er það í tveimur
bindum. Hið fyrra er saga Prestaskólans og Guðfræðisdeildar
Háskólans 1847—1947. Hefir séra Benjamín ritað það bindi. Er
það í rauninni geysimikið verk, alls 392 bls., með heimilda- og
nafnaskrá, en hefði orðið enn meira, hefði tími og útgáfufé leyft.
Eins og lesendur Kirkjuritsins muna, þá hafa birzt þar nokkrar
greinar um skólahald á biskupsstólunum fornu eftir séra Benja-
mín. Eru þær drög að allsherjarsögu um undirbúningsmenntun
presta og hefðu vel átt heima sem inngangur að sögu Presta-
skólans.
Háskóli Islands á vafalaust dr. Pétri Péturssyni, fyrsta for-
stöðumanni Prestaskólans, margt að þakka. Hann brýtur nýja
slóð í menntunarmálum Islendinga, þrátt fyrir töluverða and-
stöðu á fyrstu árum. Það var einnig skólanum til happs, að dr.
Pétur skyldi sitja eins lengi á biskupsstóli og raun varð á. Þá
gat hann óbeint haft töluverð áhrif á þróun skólans. Prestaskól-
inn þroskast smám saman og er svo heppinn að njóta góðra
kennslukrafta. Þegar Háskóli íslands var stofnaður, er Guð-
fræðideildin mynduð úr Prestaskólanum. Hún nýtur sömu
kennslukrafta áfram að mestu leyti og byggir á arfinum frá
Prestaskólanum enn í dag.
Prestaskólinn eins og Guðfræðideildin hélt í heiðri sannleiks-
leit og víðsýni. Það er arfur hans, sem Guðfræðideildin varð-
veitir enn í dag, hvort sem kennarar teljast í hóp nýguðfræðinga
eða gamalguðfræðinga, enda má telja, að sú skipting sé nú að
verða úrelt að ýmsu leyti.
Framsetning séra Benjamíns er lifandi og ljós. Það er auð-
fundið, að hann hefir lifað sig inn í efnið. En hún hefir gefið
tilefni til blaðadeilu milli Páls Kolka og hans. Færi vel á því, að
sem flestir læsu þessa bók og blaðagreinar þeirra í Morgunblað-
inu til þess að fullvissa sig um, hvort rétt eða rangt sé með farið.
Annað bindi hefir Björn Magnússon, dósent, samið. Er það
kandídatatal 1847—1947. Þar er allra kandídata getið, og fylgir
mynd af flestum. Hefir dósentinn unnið mikið verk við skrá-
setninguna og unnið það vel, því að fáar eru þar villur. Er þetta
kandídatatal mjög ýtarlegt og ótæmandi brunnur til að ausa úr
fyrir þá, sem hnýsast vilja í hagi guðfræðinga.
Á bls. 328—335 er skrá yfir þá, sem lokið hafa prófi við