Kirkjuritið - 01.04.1948, Blaðsíða 34
128
KIRKJURITIÐ
mín. En mér var ekki unnt að skrifa svo minningargrein
um séra Árna látinn, að ég ekki minnist á þetta um leið.
Og þó að margt sé í þessari bók, sem valdið hefir mér
vonbrigðum og kemur flatt upp á mig, veit ég, að minning
hans þolir vel, að um þetta sé rætt hleypidómalaust.
Ég vil þó vona, að öll gremja út af þessu verði einungis
stundarfyrirbrigði. Manngildi séra Árna mun áreiðanlega
eyða þeim veðrabrigðum, sem nú eru, því að meðvitundin
um það, hvern mann hann hafði að geyma, mun fljótlega
standa yfir höfuðsvörðum allrar gremju, og það sannast,
að „hið mikla geymir minningin, en mylsna og smælki“
fer.
Séra Árni Þórarinsson var fæddur 20. janúar í 1860 Götu í
Ytrihrepp í Árnessýslu. Hann varð stúdent 1884 og kandídat
í guðfræði 1886. Vígðist sama ár til Miklaholtsprestakalls í
Snæfellsnesprófastsdæmi og þjónaði þar til 1934. Hann var
Drófastur 1923—1934. Síðustu árin átti hann hoima í Reykja-
vík. Hann andaðist 3. febr. þ. á.
Þorsteinn L. lónsson.