Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 19

Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 19
SÉRA GUÐMUNDUR EINARSSON 113 Ég vitnaði í orð postulans, þar sem talað er um trú móðurinnar. Svo er mál með vexti, að ég kynntist móður Guðmundar áður en ég þekkti hann. Úlfhildur Guðmunds- dóttir frá Flekkudal var vinkona móður minnar. Þegar ég var drengur heima hjá móður minni, sá ég og heyrði Úlfhildi oft. Hlustaði ég oft á samtal hennar og móður minnar og heyrði þá, að trúuð kona var í heimsókn. Síðar varð ég góður vinur Úlfhildar, og hjá henni sá ég gleði og festu trúarinnar. Þessi trú gekk að erfðum til bama hennar og niðja. Þegar talað er um ævistarf séra Guðmundar, þá má ekki gleyma arfinum, hinum andlega fjársjóði, sem hann eign- aðist í heimkynnum foreldranna. En þó að móðirin sé trúuð, getur svo farið, að barnið fari aðra leið. Hér fór það svo, að arfurinn varð persónuleg eign, og bar svo ríkan ávöxt, að af arfinum og eigninni var lifað langa ævi. Sú stund kom, að séra Guðmundur gat sagt, eins og sagt var við samversku konuna: „Það er eigi framar fyrir þitt tal, að vér trúum, því að sjálfir höfum vér heyrt og vitum, að þessi maður er frelsari heimsins.“ Gott er að eiga trúaða foreldra, gott er að vera undir því áhrifavaldi, sem fylgir bæn trúaðrar móður. En aðalatriðið er að geta sagt: „Nú trúi ég.“ Það er ekki aðalatriðið að segja já við einu og öðru, að samsinna. En ef hjartað fyllist fögnuði vegna sannleika trúarinnar, þá verður ekki aðeins sagt: »,Ég trúi, að þetta sé satt og rétt.“ Þá brýzt játningin fram: >,Ég trúi á Drottin." „Lífið er mér Kristur." En þá verður trúuðum manni ómögulegt að setja Ijósið undir mæliker. Þá verður með gleði sagt: „Ég trúði, þessvegna talaði ég.“ Guðmundur Einarsson eignaðist heita, ákveðna og sjálf- stæða trú. Við vorum skólabræður, en leiðir okkar lágu ekki oft saman þá. Guðmundur varð stúdent 1901. Sigldi hann þá samsumars til Kaupmannahafnar til guðfræðináms. Þar varð hann fyrir sterkum, vekjandi áhrifum kristindómsins. 8

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.