Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 20

Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 20
114 KIRKJURITIÐ Átti hinn ungi maður því í sannleika sælar stundir í sam- félagi við þá menn, sem voru brennandi í andanum. Stúdentsprófi lauk ég 1902. 1 júlímánuði fékk ég bréf frá Guðmundi Einarssyni stúd. theol. Hann skrifar: „Ég hefi heyrt, að þú hafir í hyggju að koma hingað til Hafnar, og að þú ætlir að lesa' guðfræði. Vertu velkominn. Það gleður mig innilega, að í hjarta þínu er svar við spurn- ingunni: Hvað virðist þér um Krist? Hvers son er hann? Ég veit, að svar þitt styrkist, er þú kemur hingað.“ Til Hafnar kom ég 4. sept 1902. Þar tóku þeir á móti mér tryggðavinir mínir, Guðmundur Einarsson og Jón Öfeigsson. Sama kvöld fór Guðmundur með mig á samkomu, er haldin var í Kristilegu stúdentafélagi. Þar talaði Ussing, einn hinn þróttmesti kennimaður Dana, og þar talaði einn- ig guðfræðikandídat, Olfert Ricard að nafni. Átti ég þá í fyrsta sinni tal við þann mann, sem ég þakka Guði fyrir í hvert sinn, er ég minnist hans. Á fyrsta stúdentsári mínu lauk séra Gísli Skúlason guð- fræðiprófi. Voru þá 3 íslendingar við það nám, Guðmundur, Haukur Gíslason og ég. Héldum við hópinn og áttum margar yndislegar stundir, í kirkjum, við háskólafyrirlestra og í biblíulestrarflokkum.. Við lukum prófi, Guðmundur og ég, í júní 1907. Nokkrum mánuðum á undan okkur varð Hauk- ur kandídat. Eftir það luku þeir guðfræðinámi í Höfn, séra Páll Sigurðsson og séra Sveinbjörn Högnason. Er þá lokið dvöl Islendinga við guðfræðideild Háskólans í Kaup- mannahöfn. Af stúdentum frá Reykjavíkurskóla eru nú á lífi 5, sem nám þetta stunduðu í Khöfn: Séra Haukur Gíslason, sem nú hefir sótt um lausn frá embætti, sem hann hefir gegnt um áratugi. Hér heima eru séra Friðrik Hallgrímsson, séra Páll, séra Sveinbjörn og ég. Oft höfum við séra Guðmundur talað um Hafnarárin, kennarana, sem voru hálærðir og trúaðir. Þar var Peder Madsen, hinn öruggi og trausti, sannur í trú og fræðslu, Henrik Scharling, hinn lærði guðfræðingur og merki rit-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.