Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 22

Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 22
116 KIRKJURITIÐ Fimm urðu prestsár hans þar. En tuttugu urðu prestsár hans á Mosfelli í Grímsnesi. Prests- og prófastsstörfum gegndi hann með röggsemi og prýði. Hver helgiför var honum hátíð, og um það talaði hann oft við mig, að um hann streymdi ylur frá nálægð Guðs, er hann væri frammi fyrir altari Drottins og flytti í prédikunarstóli orð lífsins. Séra Guðmundur átti alvöru, lofgjörð og gleði trúarinnar. Það muna sóknarbörnin og það muna prestarnir. Það var enginn flysjungur, sem kvaddi sér hljóðs, er séra Guð- mundur tók til máls á prestastefnum og víðsvegar á mörgum prestafundum. Skoðanir hans voru fastmótaðar, eins og maðurinn sjálfur var þéttur á velli og þéttur í lund. En í fylgd með festu hans var hin drenglundaða vinátta og sannur bróðurhugur. Hvort sem hann var í kirkju eða á heimilum sóknarbarna, var hann fyrst og fremst presturinn. Hjarta hans titraði af fögnuði trúarinnar, og bænin reyndist honum hin örugg- asta hjálp og hin réttasta aðferð. Ef honum geðjaðist ekki að skoðunum eða málflutningi samferðamanna sinna, sagði hann oft við mig: „Það er aðeins eitt að gera. Það er að biðja fyrir þeim.“ Ég vissi, að þessi aðferð var í nánu sambandi við hugarfar hans og trú. Séra Guðmundur var í senn hinn einlægi trúmaður, trúr þjónn Drottins og kristinnar kirkju, og dugmikill sveitarhöfðingi. Næman skilning átti hann á hinum marg- háttuðu viðfangsefnum, starfi og baráttu mannanna. Hann skildi svo vel, að menn vildu búa í landinu við bættan hag, og njóta þeirra gæða, sem Guð gaf fögru landi. En um fram allt skyldi hið heilaga vera súrdeigið, sem gagnsýrir allt mjölið. Það var honum um að gera, að á allt væri litið frá sjónarmiði eilífðarinnar, svo að yfir þeim, sem búa í náttmyrkranna landi, mætti ljóma fögur birta. Það var innileg þrá hans, að prestarnir bæru ljósið til mannanna, bæði á helgum og virkum dögum. En það vita prestarnir, að hag þeirra og bætt kjör bar hann mjög fyrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.