Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 32

Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 32
126 KIRKJURITIÐ hraun þá miðstöð æskuyndis og fjörs og samkomustaður unga fólksins í sveitinni, sem sótti þangað gleði og uppbygg- ingu. Af því, sem þegar hefir verið sagt, dylst engum, að séra Árni hefir verið meira en meðalmaður. En enginn er algjör, og því var hann búinn bæði kostum og brestum afburða- mannsins, sem sumir voru samgrónir stórfelldum hæfileik- um og manndómi. Mörgum er svo farið, að þeir einblína á brestina, sem óneitanlega vaxa mörgum í augum, og einkum þegar um er að ræða stórbrotinn einstakling í orðum og athöfnum. Mér er kunnugt um, að þessa hefir nokkuð gætt í dóm- um sumra manna um hann, og þó hefi ég ávalt fundið hjá þeim dulda virðingu fyrir honum. En mér er hinsvegar vel kunnugt um það, að nálega allir, sem þekktu séra Árna vel og voru samtíða honum á starfsárum hans, heima í héraði, kunna vel að meta kosti hans og létu sig minna varða um hitt,. sem þeim fannst miður, eða strikuðu það alveg út. Þetta sannar bezt virðing sú og tiltrú, er hann naut sem prestur í sóknum sínum, fyrst og fremst, og þá einnig það, að jafnan var hanri valinn af hrepps- búum til að hafa forystu um sveitarstjórnarmál, á meðan hann gaf kost á sér til þeirra hluta. Séra Ámi var snemma vel þekktur í héraði og eiginlega fyrir löngu orðinn þjóðkunnur maður, og er það fátítt um sveitapresta, sem ekki láta sín getið utan sveita sinna, hvorki í ritum né á þjóðfundum. En þó var þetta svo, og voru það einungis afburða gáfur hans, sem vakið höfðu þessa athygli á honum. Það er aðeins fyrir þrem árum, að hann lætur sín getið á prenti, þegar hafin er útgáfa á ævisögu hans, sem er að koma út í mörgum bindum. Eins og kunnugt er, er þessi saga ekki skrifuð með hans eigin hendi, heldur les hann efnið öðrum fyrir, en stíllinn og málsnilldin er hans.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.