Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 50

Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 50
144 KIRKJURITIÐ Og þetta má vissulega einnig þakka íslenzkri alþýðu, góðri og gegnri, heilbrigðri, öfgalausri, sem staðið hefir með prestunum vörð um trú feðra sinna og mæðra öld af öld. Það hefir verið sagt um íslenzku þjóðina, að hún hafi aldrei orðið fyrir neinni trúarvakningu. Slíkt er fjarri sanni. Að vísu hefir þjóðin ekki haft kristni sína að skraut- brennu, en hún hefir verið arineldur heimila hennar og yljað henni og lýst í ótal nauðum, í lífi og dauða. Og við þann eld hafa kveikt á kertum sínum menn eins og höfundur Sólarljóða og Lilju, Hallgrímur Pétursson og Matthias Jochumsson. Stöndum öll saman trúlega um þennan dýra arf, vígðan og helgaðan af reynslu kynslóðanna á undan okkur. Enginn ágreiningur er svo mikill, að hann jafnist ekki, er aðiljar bera í brjósti nógu hlýjan hug hver til annarra. Þetta skildi hann flestum betur, þjónn Krists, er um langan aldur hafði helgað kristninni alla krafta sína og séð deilur rísa og hníga. Hann hafði numið það af meistara sínum, hvað þurfti til að tryggja einingu kirkjunnar. Með einu var allt fengið. Hann flutti stytztu og fegurstu pré- dikunina, sem nokkur lærisveinn Jesú Krists hefir haldið — sömu orðin aftur og aftur, lét bera sig að æfilokum á safnaðarsamkomurnar til að segja þau, Mig langar til að ljúka með þeim þessari grein: „Börn mín. Elskið hvert annað.“ Ásmundur Guðmundsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.