Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 66

Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 66
160 KIRKJURITIÐ kvæðu öfl með þjóðinni sjálfri, og þjáningar foringjans urðu oft ótrúlegar, því að mörg voru afbrotin framin í eigin flokki hans. En hann tók ævinlega allra sekt á sig, svo að þjóðin hans er nú farin að skilja, að um hann get- ur hún sagt: „En hann særður var vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða". Og nú er heimi öllum að verða ljóst, að á Indlandi hefir sannazt, að Kristur mælti sannleikans mikla orð, er hann sagði: „Sælir eru hógvær- ir, því að þeir munu landið erfa“. Fyrir hógværð Gandhis hafa Indverjar erft land sitt að nýju. Hershöfðingi Breta spottaði hina vopnlausu baráttu hins hógværa manns, og jarlinn brezki sagði fyrir 30 árum, að vitleysa Gandhis væri fáranlegasta vitleysan, sem enn hefði komið upp í heiminum. En hvað hefir tíminn leitt í ljós? Hver var vitur og hver var heimskingi? í straumelfum sínum bera hin heilögu fljót Indlands ösku Mahatma Gandhis til sjávar, og hún týnist, en lífsverk hans mun lifa, og um aldur mun það hrópa til þeirra, sem bera kristið nafn. Húsið hans á að varðveit- ast komandi kynslóðum, óbrotið og fátæklegt, því að „í hallarglaum var hans hjarta fátt, hreysið hann kaus með rjáfrið lága“, en í hinum óbrotna einfaldleik á húsið hans að minna menn- ina á mikla hluti, tala til þeirra um hin stóru mál. Jón Auðuns. (Um Gandhi og baráttu hans hefir langbezt ritað á íslenzku séra Kjartan Helgason, prófastur í Hruna, í ágætri ritgerð í 9. og 10. árg. Prestafélagsritsins. En um hin síðari starfsár Gandhis hefir ekkert verið ritað að gagni. Væri það þó nauðsynjaverk. J. A.)

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.