Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 69

Kirkjuritið - 01.04.1948, Side 69
163 ÉG HEFI NOKKUÐ AÐ SEGJA ÞÉR Hversu áhrifamikil er hún myndin, sem þessi frásaga bregður upp. Hversu ljóslega standa höfuðpersónur henn- ar fyrir hugarsjónum vorum. — Hinn sjálfsánægði og þóttafulli Farísei. — Bersynduga konan, sem krýpur grát- andi að fótum Jesú. — Meistarinn, sem horfir á þau á víxl, syndarann og hinn flekklausa — augunum, sem kunnu að lesa hinar leyndustu hugarhræringar — og kveður síðan upp hinn óvænta dóm. -— Því hversu óvæntur og ósanngjam hefir dómur Jesú hlotið að vera í augum Símonar Farísea. — Var hann ekki rétttrúaður og réttlátur maður? Hafði hann ekki jafnan gætt þess, að lifa samkvæmt forskriftum lögmálsins? Hafði hann nokkru sinni gerzt sekur um nokkra áberandi hrösun? Hafði hann ekki fyllsta rétt til að fyrirlita ber- syndugt fólk eins og konuna, sem kraup að fótum Jesú? Var nokkurt vit í því að gera slíkan samanburð á honum og henni? Keyrði það ekki að minnsta kosti úr hófi fram, að gefa í skyn, að syndalíf hennar hefði stuðlað að því, að þroska með henni eiginleika, sem gerði sál hennar Guði þóknanlegri en sál hins siðavanda Farísea? Það mat á lífsviðhorfum, sem kemur fram í viðræðu Jesú við Símon Farísea, er bæði djúphugsað og dásamlegt. En orð Jesú falla á þá lund, að næsta auðvelt er að mis- skilja þau og fá út úr þeim hættulega villukenningu. Vér skulum því taka til ýtarlegrar íhugunar viðhorf Jesú til syndaranna og athuga síðan orð hans hér í ljósi þess. -— Jesús barðist gegn syndinni í öllum hennar myndum, en barátta hans gegn henni var í því gagnólík baráttu kennimanna Gyðinga, að þeir lögðu höfuðáherzluna á að banna og refsa fyrir einstakar verknaðarsyndir, en Jesús lagði allt kapp á að ná fyrir rætur syndalífsins með því að koma hugarfarsbreytingu á hjá syndaranum. Kærleiks- ríkt hugarfar var að kenningu hans eini hugsanlegi lyk- illinn að guðsríki. — Að hvaða leiðum menn öðluðust þetta bugai’far, var að hans dómi ekkert höfuðatriði. — Nú bafði lífsreynsla hans fært honum heim sanninn um það,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.