Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 76

Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 76
170 KIRKJURITIÐ Tímarnir breytast. Nýjar starfsaðferðir hafa verið teknar upp á verklega sviðinu, er þykja taka fram þeim eldri, en á kristilega starfssviðinu eru framfarirnar og leitin að bættum starfsaðferðum langt aftur úr því verklega. Út- varpsmessur eru að mínum dómi þakkarverðar og ómiss- andi, en þær munu aldrei bæta að fullu upp missi húslestr- anna, og sumir virðast því miður hafa lítinn áhuga á þessu útvarpsefni. Aðalstörf prestanna eru, sem kunnugt er, kirkjuræðumar (messur), sem eru oft illa sóttar, og að leiðbeina börnum í kristilegum fræðum fyrir fermingu. Að henni afstaðinni er oft að mestu slitið andlegu sam- starfi milli prests og barna. Flestir unglingar sækja dans- leiki óspart, er þeir bjóðast, en gleyma oft kirkju sinni. Geymirinn rennur út. Kristilegu áhrifin frá fermingarimdir- búningnum vilja oft gufa upp, en eldurinn er aðeins falinn. Ef kirkjan er ekki einfær um, með núverandi starfsað- ferðum, að blása upp neistann, svo að hann orni og lýsi sem vera ber í innra lífi mannanna, verður hún að leita að nýjum starfsaðferðum sér til hjálpar. En bjargi vanans og deyfðarinnar er ekki ætíð létt að ryðja úr götunni, til þess þarf meira en orðin tóm. Margt bendir til þess, að trúarlífi þjóðarinnar fari hnign- andi. Líkleg leið til úrbóta er að mínu áliti sú, að fólkinu yfirleitt gefist meiri kostur en áður að taka virkan þátt í kristilegri starfsemi, þannig að séð verði fyrir því, að kristi- leg æskulýðsfélög starfi í öllum prestaköllum landsins. Þau mundu glæða trúarlíf unglinga og efla siðferðilegan þroska þeirra, og þá jafnframt gera prestsstarfið ánægjulegra og áhrifaríkara. Til þess að koma þessu í kring þarf biskup Islands að fá alla prófasta á landinu til að vinna að því, að allir prestar í umdæmum þeirra stofni slík félög á næsta ári, þar sem þau ekki eru starfandi, með þeim börnum, er þeir þá ferma, og fleirum, er kynnu að vilja ganga í félögin, og fylgdu svo að sjálfsögðu þeirri reglu að fá árlega hvern árgang fermingarbama sinna inn í félagsstarfsemina.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.