Kirkjuritið - 01.12.1951, Qupperneq 47
KRISTINDÓMSFRÆÐSLA í NOREGI 297
ið upp sömu skipan þessara mála, en í Danmörku mun
hið sama vera í undirbúningi.
Hin norska stofnun hefir aðsetur sitt í Osló og nefnist
„Institutt for kristen oppseting". I aðalráði hennar á hver
félagsdeild, sem að henni stendur, einn fulltrúa, og kemur
ráðið saman minnst einu sinni á ári, en oftar, ef þurfa
þykir. Aðalfáðið kýs sér framkvæmdanefnd, en fram-
kvæmdanefndin kýs framkvæmdastjóra og ritara, og eru
þeir tveir fastir starfsmenn stofnunarinnar.
Tilgangur „Institutt for kristen oppseting" er fyrst og
fremst sá að vinna að því með ráðum og dáð að efla og
auka kennslu kristinna fræða í skólum Noregs og sýna
fram á, hve mikið uppeldisgildi sú námsgrein getur haft,
sé rétt rækt við hana lögð.
Fyrirfram mátti vita, að margvísleg verkefni biðu úr-
lausnar, en þó mun fáa hafa grunað, að starf stofnunar-
innar yrði svo yfirgripsmikið sem fljótt varð raunin á.
Eitt fyrsta verk hennar var það að skipa um allt landið
nefndir til að hafa samband við kristinfræðikennara og
veita þeim stuðning, stofna til móta, þar sem rædd eru
áhugamál stofnunarinnar, safna fé til starfsemi hennar
o. s. frv. Sumstaðar hafa sóknarnefndir tekið þetta hlut-
verk að sér. „Institutt for kristen oppseting" gerir sér far
tun að auðvelda þessum nefndum starf þeirra, m. a. hefir
Það sent þeim lista yfir ræðumenn, sem fúsir eru til að
tala á fundum þeirra og mótum.
Á listanum eru nöfn biskupa, þingmanna, prófessora,
Prófasta, presta og kennara víðs vegar um Noreg. Er það
fjölmennur hópur og viðfangsefni margbreytileg. Ef til
viU sýnir þessi ræðumannalisti betur en nokkuð annað,
hve geysimikill kraftur stendur nú þegar á bak við stofn-
únina.
Einn aðalþátturinn í starfi „Institutts for kristen opp-