Kirkjuritið - 01.12.1951, Síða 60
310
KIRKJURITIÐ
þess, að séra Ingvar þjónaði í Sauðanesprestakalli um vetr-
artíma, í mikilli fjarlægð.
,J3óndinn“. Bú þeirra hjóna á Skeggjastöðum var stofn-
að af fremur litlum efnum í fyrstu, en fyrir dugnað og
ráðdeild þeirra beggja, blómgaðist það fljótt og gaf af-
komu góða og efni. Bújörðin er líka allvel löguð til jarða-
bóta, og sauðland er þar mikið og með ágætum. Var það
vel notað með góðum fjárstofni og úrvals kynbótum, er
þaðan dreifðist svo út á ýmsa staði. Hafði séra Ingvar
fjármenn góða, m. a. Jón Benediktsson, prýðis fjármann, í
mörg ár. Fjáreignin varð allt að 200 ær og 50—60 sauðir.
„Bóndinn" hugsaði líka vel um jörðina: Sléttaði túnið og
stækkaði með plæging og sáðningu, og lét sér mjög annt
um ræktunina. Vírgirti túnið allt, fjárbæli (nátthaga) og
um engjar með hagablettum. Áður var þetta allt ógirt og
í lítilli rækt.
Búbót var það góð, að þegar vel viðraði á sumrin og
fiskur gekk í fjörðinn, mátti róa skammt frá landi með
handfæri og afla soðningar til ársins, þegar bezt gafst. Jörð-
in var nokkuð fólksfrek, og hafði prestur þar oft 4 vinnu-
menn og 3 vinnukonur. Var það sama fólkið mörgum ár-
um saman, og sýnir það hjúasæld og góðan viðurgjöming,
því eigi var fólkið látið sitja aðgerðalaust inni né úti. Þurfti
og að taka þar til hendi, m. a. við efnis-aðdrætti alla, með
grjóti, sandi og möl til steinsteypubyggingar stórs íbúðar-
húss fyrir prestssetrið. Auk tillags frá ríkinu lagði séra
Ingvar í hús þetta ótalið erfiði og útlát í peningum. Þar
að auki lét „bóndinn" byggja upp öll hús jarðarinnar
önnur: skemmu, fjós, hlöðu og 5 fjárhús. Eitt þeirra stærst,
ásamt hlöðu, með jámþaki. Vakandi auga hafði hann með
öllum vinnubrögðum og vann sjálfur að heyvinnu um slátt-
inn, þótt ekki gengi hann að slætti.
En áhuginn dofnaði nokkuð hjá honum síðustu 2 árin,
eftir konumissinn, og bar hann aldrei að fullu barr sitt
eftir það. Var þá og farinn að hugsa um hvíldina og að
hverfa frá embættinu og öðrum störfum.