Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1951, Síða 85

Kirkjuritið - 01.12.1951, Síða 85
MINNINGARRÆÐA 335 fylgjur ár frá ári. Eigi var til svo lítill karl, að hann liti ekki niður á þenna misheppnaða mann. Hann átti að vísu vopn og verju: ferskeytluna, er varð stundum í höndum hans hvöss eins og byssustingur. En hann átti annað betra. Eitt öruggt hlífðarskjól: trúna — trúna á Jesúm Krist, sem kom í heiminn til að frelsa synduga menn. Og trúna hafði hann öðlazt, eins og reisusálmur hans til íslands, ortur nokkrum árum áður, ber órækan vott um. Hann varð prestur á Hvalsnesi og hlaut þar litla virðing, en auðgaðist þar að þungri lífs- reynslu að missa þar barn sitt, er var honum hjartfólgn- ast. Að elska og missa. Er annað til, sem dýpkar og göfgar skapgerð mikilla manna meira en einmitt þetta? Fyrri ár sr. Hallgríms í Saurbæ er blómatími ævi hans, og honum ver hann til að yrkja meistaraverk sitt — Passíusálmana. Dómur margra kynslóða um þá er fall- inn. Það er bókin, er þjóðin hefir elskað mest. Um lang- ar, strangar aldir Ijós hennar, líf og von. Með þeim hefir kristin móðir veitt ungu barni sínu ina fyrstu innsýn í heima trúarlífsins. 1 þá hefir verið sótt síðasta bænar- andvarp hins deyjandi manns. — Sú skoðun var lengi ríkjandi, að þeir væru ortir af blásnauðum, holdsveikum manni, og væru því stuna og neyðaróp hins hrjáða manns, en svo er ekki. Þeir eru ortir af manni, er bjó við sæmi- leg kjör og fulla likamshreysti. — Sálmarnir eru bornir uppi af tveim meginskautum: þungri syndavitund og heitri Kristselsku. Með þeim er séra Hallgrímur að borga skuld, sem aldrei verður þó greidd — skuldina við frelsara sinn og Drottin, sem gaf líf sitt til lausnargjalds fyrir hann, hinn synduga mann. — Passíusálmarnir eru hugvekja um það, hvað Drottinn hefir fyrir oss gert, hugvekjan um hinn líðanda þjón, er var kraminn vegna vorra misgjörða og bar syndir vorar upp á tréð. — Skáldinu er mikið í mun að minna á þenna kjarna kristindómsins: Ó, Jesú, gef þinn anda mér, allt svo verði til dýrðar þér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.