Kirkjuritið - 01.12.1971, Qupperneq 78
hafa hug á að kynnast sögu þessa
manns betur, þegar tœkifœri gefst nú
til að kynnast einni bóka hans á ís-
lenzku, en sú bók, sem kemur út inn-
an skamms, hefur hlotið heitið:
NEÐANJARÐARKIRKJAN.
Bústaðakirkja vígð
Hinn 28. nóvember s. I., á fyrsta
sunnudegi í Aðventu, vígði biskup
landsins, herra Sigurbjörn Einarsson
Bústaðakirkju í Reykjavík. Rœttist þar
draumur safnaðar, sem hefur staðið
af frábœrum dugnaði að því að koma
sér upp veglegu musteri. Er kirkjan
teiknuð af Helga Hjálmarssyni, en
byggingarmeistari var Davíð Kr. Jens-
son. Tók sóknarpresturinn, séra Ólafur
Skúlason, fyrstu skóflustungu kirkj-
unnar kl. 8 að morgni hinn 7. maí
1966 og hefur slðan verið unnið á
hverju ári eftir því, sem fé leyfði þar
til nú í sumar að aflað var lánsfjár.
Fyrsti sóknarnefndarformaður var
A."el L. Sveins og tók hann við stjórn-
artaumum við stofnun safnaðarins
sumarið 1952, og fyrsti prestur var
séra Gunnar Árnason. Núverandi for-
maður er Guðmundur Hansson, en
safnaðarfulltrúi er Ottó A. Michelsen,
og gjaldkeri er Helgi Eysteinsson.
Við vígsluna var flutt tónverk, sem
sérstaklega var samið af Jóni Ásgeirs-
syni í þessu tilefni og tileinkað kirkj-
unni. Annaðist kirkjukórinn allan söng
undir stjórn organistans Jóns G. Þór-
arinssonar.
Þó sjálf kirkjan sé nú tilbúin, er
mikið eftir enn, þar sem er allt safn-
76
aðarheimilið. Er áœtlað að leitast við
að taka í notkun á þessum vetrl
safnaðarsal, sem líka þjónar sem
tengisalur við kirkjuskipið, þegar ekk'
komast allir 1 sœti kirkjunnar, sem erU
350. Þá hefur sóknarpresturinn flutt
skrifstofu slna í kirkjuna og hefur þa(
sinn viðtalstíma. Frá því vígslan f°'
fram hefur kirkjan œtlð verið þett'
setin, og á aðfangadag og jóladag
voru um 1000 manns, sem sóhu
messurnar hvorn dag.
Álitsgerð Prestastefnu íslands 1971
* ð'
Til áréttingar og í beinu framhaldi af urT,r
um og álitsgerð síðustu prestastefnu, er I
aði um kristna frceðslu í skólum, hefur að P
sinni verið rœtt um kristna uppeldismotun
skyldur þjóðkirkju við alla þegna samfélagsl
Skóli og kirkja vinna þar að sameigime^.
verkefnum og œttu að stefna að einu ma ^
að ala upp sjálfstœða einstaklinga, sem re
líf sitt á grundvelli kristinnar trúar og siög
Á þessum tímum umbrota og rótleysis, Þ~
svo margir virðast missa fótfestu og finna e^
lífi sínu tilgang, er þess brýn þörf, °Qg
kristnir uppalendur, svo sem kirkja, skóli
heimili, haldi vöku sinni í hvívetna og ^
markvisst saman að aukinni kristinni uppe
mótun.
Prestastefnan lýsir ánœgju sinni með un^.g
tektir fjölmargra skólamanna og annarra
stefnu kirkjunnar að auknum, kristnum óhri^^
í skólum landsins, fagnar því samstarfi, ^
þegar hefur tekizt með þessum aðilum ^
vœntir þess, að kristin frœði eigi
lífsmótandi afl í skólastarfinu.
III.
Hið ótvírœða hlutverk kirkjunnar í heirm
er að vinna menn til trúar á Jesúm Krist'
álítur prestastefnan, að kirkjunni beri skylo
inum