Kirkjuritið - 01.06.1972, Page 52
J.R. RICHARDS, D.D., biskup, St. David's:
Hvað er Bahaitrú?
Grein sú um Bahaiismann, sem hér birtist, er hvorki rituð sem árós né áróður, heldur
til frœðslu. Höfundur hennar er dr. J.R.Richards, sem nýlega hefir látið af embœtti sem
anglikanskur biskup í St.Davíðs-biskupsdœmi í Wales. Hann er mjög lœrður maður og
vel kunnugur trúarsögu og trúararfi Múhammedstrúarmanna, auk þess sem hann átti
heima í ein átján ár í íran og komst í persónuleg tengsl við trúarlíf Austurlandabúa.
Þegar ég las ritgerð hans um Bahaiismann, fannst mér, að það myndi vera fengur fyrir
íslenzka lesendur að fá hana til íhugunar. Hann leyfði mjög fúslega, að hún yrði þýdd
og birt í Kirkjuritinu.
Þegar nýjar trúarhreyfingar berast til landsins, er ekkert nauðsynlegra heldur en a-
reiðanleg frœðsla, veitt af þekkingu og samúð. Höfundur þessarrar greinar rœðir lítið
um viðhorf kristinna1 manna við Bahaiismanum, en telur, að sjálfsögðu, að þar velti alh
á því, hvernig menn svari spurningunni: Hvað virðist yður um Krist? Hvað er Kristur
í vitund kristinna manna? — Vér getum vel fallizt á það, að Jesús frá Nazaret se
einn í'hópi margra frœðara og spámanna, og einn af mörgum leiðtogum á þroskabraut
mannkynsins. En getum vér samþykkt, að mannsandinn vaxi upp fyrir Krist? Vér getum
vel leitað uppbyggingar í ritum annarra trúarbragða og dáð göfuga menn, hvaðan sem
þeir eru upp runnir. En allt er þó undir því komið, að þessir ágœtu menn fœri oss nasf
Kristi og fagnaðarerindi hans.
Meginmálið er þó alls ekki það, hvar vér skipum Jesú í röð frœðaranna, heldur hitt,
að hann einn hefir risið upp frá dauðum, til þess að vera lifandi og starfandi með
hverri kynslóð sem frelsari mannanna. I samfélaginu við hann sem guðdómlega veru,
kemst maðurinn í persónulegt vináttusamband við sjálfan Guð. Þar er'hann ekki liSur
í keðju andlegrar þróunar, heldur ,,hinn sami í gœr og í dag og um aldir", hversu
margir ágœtir menn, sem fram koma í aldanna vegferð. Jakob Jónsson-
Hvað er Bahaitrú? Þeirri spurningu
nœgir ekki að svara með því einu
að endurtaka í sífellu fullyrðingar
þess efnis, að Bahaitrúin sé fullkomn-
un allra trúarbragða, hafi að geyma
jöfnum höndum trú og skynsemi og
146
k ^
setji sér sem raunhœft takmö
koma á heimsfriði á grundvelli
einingar. Slíkar fullyrðingctr oQ ^
lýsingar er auðvelt að gera, ^
eru gerðar af áróðursmönnum ^r
arra trúarbragða. Þœr segjd r
Á