Kirkjuritið - 01.06.1972, Blaðsíða 66
samkoma var mjög fjölsótt. Þá er
þess og getið, að haldin hafi verið
páskavaka í Langholtskirkju í Reykja-
vík. Stóð hún til sólarupprásar. Þeg-
ar flezt var, voru staddir þar 1000
manns og 300 gengu til altaris um
morguninn við guðþjónustu. Sr. Bern-
harður Guðmundsson sá um undir-
búning vöku þessarar og stjórnaði
henni, en hún var haldin að frum-
kvœði skiptinema.
AÐALFUNDUR
PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS
Aðalfundur Prestafélags íslands var
haldinn í Félagsheimili Hallgríms-
kirkju, mánudaginn 19. júní. Formað-
ur félagsins, sr. Grímur Grímsson,
flutti skýrslu stjórnarinnar og stjórn-
aði síðan fundinum. Aðalumrœðu-
efni fundarins var aukaverk presta.
Urðu miklar umrœður um það mál.
Kom þar m.a. fram, að nauðsynlegt
vœri, að hver sóknarprestur hefði
það fyrir höfuðreglu að vinna ekki
aukaverk í annarra prestaköllum,
nema viðkomandi sóknarprestar
hefðu rœtt það sín á milli. Þá var
borin fram tillaga þess efnis, a^
fundurinn samþykkti, að gefnu til-
efni, að stjórn Prestafélags íslands
bœri að hafa forgöngu um allt, er
varðaði launamál stéttarinnar. Var
þessi tillaga samþykkt. Skipuð var
nefnd til að íhuga fyrirkomulag a
greiðslum fyrir aukaverk. íhugan
hennar skal einkum beinast að þvl
að finna aðra leið en tíðkazt hefir
um greiðslur án þess að skerða kjör
stéttarinnar, sem slœm eru fyrir-
Þessa nefnd skipa þeir sr. Jónas
Gíslason, sr. Garðar Þorsteinsson,
prófastur og sr. Þorleifur Kristmunds-
son.
Stjórn félagsins var endurkjörin-
Hana skipa: Sr. Grímur Grímsson, sr-
Jón Árni Sigurðsson, sr. Guðmundur
Óli Ólafsson, sr. Ólafur Skúlason og
sr. Arngrímur Jónsson. Fundurinn
var vel sóttur.
160