Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1973, Page 82

Kirkjuritið - 01.09.1973, Page 82
hlýtur því að vinna tákn og furðuverk í lífi sínu, eins og Sýrak segir. Sjáðu nú, vilji einhver ekki aðeins vinna góð verk, heldur furðuverk meir að segja, sem Guð getur hrósað og haft þóknun á, hvað þarf hann annað að hugsa? Hann gœti að sjálfum sér, svo að hann fari ekki að elta gull. Hann setji ekki traust sitt á fjármuni, heldur láti gullið elta sig og féð bíða náðar sinnar. Hann hafi engar mœtur á því né láti hjarta sitt loða við það. Þá er hann hinn sanni örláti maður, sem vinnur furðuverk og er hamingju- samur. í þeim skilningi segir Job. 31: ,,Ég hef aldrei reitt mig á gull til þessa og aldrei látið féð vera huggun mína og traust." Og í Sálmi 62 segir: ,,Þótt yður hlotnist auðœfi, þá gefið þvi ekki gaum." Sömuleiðis kennir og Kristur í Matt. 6, að vér skulum ekki vera áhyggjufullir um það, hvað vér eig- um að eta og drekka og hverju vér eigum að klœðast, því að Guð sjái fyr- ir því og viti, að vér þörfnumst þessa. En margir segja: ,,Já, reiddu þig á það. Vertu áhyggjulaus og sjáðu, hvort það flýgur ekki steikt hœna í munninn á þér." En ég segi ekki, að neinn eigi að láta ógjört að vinna og leita sér fœðu, heldur eigi hann aðeins að vera áhyggjulaus, ekki ágjarn og láta ekki hugfallast út af þvi, að hann hafi nóg. Því að vér erum allir dœmdir með Ad. am til erfiðis eins og Guð segir í I. Mós. 3 ,,í sveita andlitis þíns skaltu brauðs þíns neyta." Og í Job. 5 segir: „Maðurinn er fœddur til erfiðis eins og fuglinn til flugs." Fuglarnir fljúga án áhyggju og ágirndar. En sértu áhyggjufullur og ágjarn í von um, að steikta hœnan fljúgi í munn þér, vertu þá áhyggjufullur og ágjarn og sjáðu, hvort þú munir halda boðorð Guðs og verða þannig hólpinn. 3. Þetta verk kennir trúin sjálfkrafa, því að þegar hjartað er visst um náð Guðs og reiðir sig á hana, hvernig er þá unnt, að maður haldi enn áframað vera ágjarn og áhyggjufullur? Hann hlýtur þó vafalaust að vera viss um, að Guð taki hann að sér. Þess vegna heldur hann ekki dauðahaldi í neina fjármuni. Hann notar þá einnig með gleði og örlœti náunganum til gagns og veit vel, að hann muni hafa nog< hve mikið sem hann gefur. Því aðGuð, sem hann treystir, mun ekki afneito honum eða yfirgefa hann, eins og stendur í Sálmi 37: „Ungur var ég, °9 gamall er ég orðinn, en aldrei hef e9 séð trúaðan mann, sem treystir Guðt þ. e. réttlátan mann, yfirgefinn °e niðja hans biðja sér matar." Þess vegna kallar postulinn enga aðrasynd hjáguðadýrkun en ágirndina, því hún sýnir greinilegast, að hún treyst't Guði í engu og vœntir meira góðs a peningum sínum en Guði. Guð er þ° heiðraður eða vanheiðraður með slíku trausti, eins og sagt hefur verið. Og í sannleika, á þessu boðorði ma skýrast sjá, að öll góð verk hljóta a fara fram og gjörast í trúnni, þv' 0 hér finnur hver maður glöggt, að van fraust er orsök ágirndar, en trúin er ar sök örlœtis. Því að örlátur er maður flf kki, e( því, að hann treystir Guði og efar e að hann muni hafa nóg. Hins vegar hann ágjarn og áhyggjufullur, af að hann treystir ekki Guði. Eins og trU in er nú meistari og frumkvöðull hin^ góða verks örlœtisins, svo er hún P einnig í öllum öðrum boðorðum. 272

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.