Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 5

Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 5
I GÁTTUM Sundurleitt mun hefti þetta þykja að efni, en vart verður því neitað með rökum, að efni þess sé nokkurs vert. Stefna Alkirkju- ráðsins og afstaða þess til kristniboðs eru mjög til umræðu um Qervalla kristnina. Stefna og straumar í amerísku kirkjulífi skipta °ss íslendinga miklu máli, að nokkru vegna frænda vorra í Þeirri álfu. Ritgerð dr. Einars Sigurbjörnssonar um kristni og afleiðingar hennar er býsna mikið framlag til íslenskra guð- íræðibókmennta. Og þannig mætti lengur telja. ^aunar hefði það verið verðugt, vegna hátíðahalda íslendinga Vestra, að kristnilífi þeirra væru gerð fyllri skil í Kirkjuriti. Nokk- Ur viðleitni hefur þó verið höfð í frammi, og er ekki öll nótt úti enn. Hins vegar rnega þeir vita, að margur man til þeirra, og bænir eru beðnar fyrir þeim á Fróni enn í dag. Hefti þessu fylgir og eins konar kveðja til íslenzkra sjómanna. 'slendingar eru kallaðir sjómenn miklir. Verðugt væri því, að sjómönnum væri meira sinnt af þjóðkirkjunni en hingað til hefur verið. Þó er það hugbót, að fyrstu brautryðjendur kristi- le9s starfs meðal sjómanna voru úr prestastétt þeir síra Oddur Gíslason og síra Friðrik Friðriksson. Og hér í heftinu er nú áafinn dálítill þáttur um þann mann, sem lengur og fremur hefur unnið að kristinni boðun meðal sjómanna, en flestir aðrir ís- ,endingar. Quð blessi sjómenn vora og leiði þá í sína höfn. G. Ól. Ól. 3

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.