Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 22

Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 22
þá glansmynd, sem húmanisminn hafði dregið upp, og haldið fram í kenningum sínum. Þeir höfðu samið einskonar motto fyrir stefnu sína, sem hljóðar svo: „Ekkert, sem er gott og göfugt, er manninum ómögulegt." Þessu vildu menn ekki lengur trúa, í Ijósi reynslunnar, en töldu hitt nær sanni: „Ekkert, sem er andstyggilegt, óheiðarlegt eða mannspillandi, er manninum ómögulegt." Menn spurðu nú ekki aðeins: Hver er maðurinn? heldur: Hvernig er maðurinn [ innsta eðli sínu? Og menn svöruðu með ann- arri spurningu: Eigum við að leita svarsins í Buchenwald, Hiroshima, eða í klúbbum betri borgara? Aftur leituðu menn til Páls postula, og spurðu hann um innræti mannsins, og svarið er ekki fallegt: „Allir eru þeir fallnir frá . . . Munnur þeirra er fullur bölvunar og beiskju. Fljótir eru fætur þeirra til að úthella blóði. Tortím- ing og eymd er á vegum þeirra, og veg friðarins þekkja þeir ekki.“ Róm. 3:12, 14—17.) Talið er að aldamótaguðfræðin hafi hlotið banasár við útkomu skýringa- bréfs Karls Barth árið 1919, og eftir það hafi áhrif hennar farið minnkandi á meginlandi Evrópu. Allir guðfræði- straumar færast frá austri til vesturs, og eru oft mjög hægfara. Stefnan átti því töluverðu fylgi að fagna vestan hafs fram undir miðja öldina, en leið þá undir lok ( sinni gömlu mynd. Ný hugvísindi komu nú fram, og stefna, sem var ný vestan hafs haslaði sér völl á sviði guðfræðinnar. Gömlu flokkarnir riðluðust. Vinstri armur ný- guðfræðinganna samdi nú nýja stefnu- skrá í þeirri von að geta samlagað sig aldarandanum, og talað til samtíð- arinnar. Nefndu þeir sig nú nýja liber- alismann. (neo liberals). Eru mannfé- lagsmál almennt, svo sem líknar- og jafnaðarstefna í stjórnmálum aðal uppistaðan í stefnu þeirra. Evangeliski liberalisminn klofnaði einnig, sumir snerust til vinstri með fyrri flokks- bræðrum sínum, en allur fjöldi þeirra gekk, ásamt stórum herskörum úr her- búðum fundamentalista undir merki hins nýja rétttrúnaðar, sem allt fram að þessu virðist eiga mestu fylgi að fagna í aðalkirkjudeildum mótmælenda vestan hafs. Nýi rétttrúnaðurinn er fremur óvið- kunnanlegt nafn. i einni og sömu and- ránni er gefið í skyn að um eitthvað nýtt sé að ræða, um leið og hið gamla hefðbundna. En þetta er þó að miklu leyti réttnefni. Markmið stefnunnar er einmitt það, að hverfa aftur til hins sögulega rétttrúnaðar, þó með nokkr- um breytingum. Stefnan er mótuð af mönnum, sem áður höfðu verið ein- dregnir fylgismenn frjálslyndu guð- fræðinnar. Fremstur þeirra er talinn ameríski guðfræðingurinn Reinold Niebuhr, og svo þýzku guðfræðingarn- ir Barth, Brunner, og Tillich. Þeir Barth og Brunner voru taldir íhaldssamari en hinir, Niebuhr og Tillich frjálslyndif. Enginn þeirra var þó fastur flokksmað- ur, og skoðanir þeirra víxlast á ýmsa vegu. Þeir hafa ritað margar bækur til að útskýra stefnur sínar, og ennþa fleiri bækur hafa verið ritaðar af öðr- um til að reyna að skilja, hvað Þe,r eru að fara í guðfræði sinni. Það verð- ur því ekki vaðið mjög djúpt í Þeirn vötnum hér. i stuttu máli: Þeir trua því, að Guð sé á himnum, en maðut' 20

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.