Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 68

Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 68
sjálfan sig hverjum þeim, sem leitar, biður og knýr á. En upphafsgrein ályktunarinnar er viðvörun gegn dultrúarfyrirbærum. Sú viðvörun olli raunar mestu fjaðrafoki, því að margir eru þeir, sem vilja geta samræmt mynd sína af átrúnaði Jesú Kristi sem n. k. hugsjón án þess að taka tillit til forsenda og afleiðinga. Dultrú í ályktun prestastefnunnar er þýðing á erlenda orðinu okkultismi. Lýsingarorðið okkult merkir hulinn, dulinn. Okkultismi merkir þá hyggju hins hulda eða dulda, og er trúar- bragðafræðileg skýrgreining hyggjunn- ar á þessa leið: Okkultismi er sú hyggja eða trú, sem álítur, að hægt sé að hafa samband við eða ná valdi yfir dularfullum eða yfirnátturlegum verum eða kröftum. Sömuleiðis tekur orðið til iðkana, sem tengdar eru þess háttar trú (ELC III. s. 1790) Nýyrði eru ætíð erfið og um nýyrðið dultrú = okkultismi má segja, að óvíst er, hvort það nær merkingu hins er- lenda orðs. En auk þess rýrir það þýð- inguna notagildi, hve stofninn dul á íslenzku hefur fengið ónákvæma merk- ingu m. a. fyrir notkun spiritista á hon- um. Orð með stofninum dul (dulrænn, dulspeki, dulhyggja o. s. frv.) eru not- uð svo ónákvæmlega, að engan veginn er Ijóst, hvaða alþjóðleg hugtök liggja að baki og ókleift er að greina mismun þann, er enskumælandi þjóðir gera á orðunum mystic, psychic, occult, svo að dæmi séu nefnd. i fullri meðvitund um það, að orðið er stirt og jafnvel tvírætt er hér lagt til orðið hulduhyggja sem þýðing orðsins okkultismi. Er það orð notað hér fram- 66 vegis og fyrri hluti orðsins, huldu-, not- aður til þýðingar á lýsingarorðinu oc- cult (hulduiðkanir = occult practices). Ef vér lítum á ofangreinda skýrgrein- ingu hulduhyggju, má segja, að hún sé ekki annað en formleg viðurkenning á því, að veruleikinn sé meiri en hann er séður. Formlega virðist hulduhyggja ekki ganga út frá öðru en að við hlið hins náttúrlega eða raunverulega sé um að ræða yfirnáttúrlegan eða dular- fullan raunveruleik. Samkvæmt því ætti eining að ríkja milli áhangenda trúar- bragða og fylgismanna hulduhyggju’ þar eð trúarbrögð ganga út frá sömu forsendu. En hér verður form ekki greint fra innihaldi, fremur en á öðrum sviðum- Hulduhyggjan er ekki formleg viður- kenning, heldur stefna, er álítur hið yfirnáttúrlega vera hlutlaust svæði- Hvetur hún menn til iðkana, er eigi hjálpa þeim til að komast í samband við hinn hulda, ósýnilega raunveruleik eða ná valdi yfir honum. Trúarbrögð hins vegar skýrgreina hinn sýnileg3 raunveruleik í Ijósi opinberunar um það, er nútímamenn nefna hulið eða dularfullt. Við bætist, að trúarbrögð verða aldrei rædd almennt, heldur hvei út af fyrir sig. Og hér ræðum var kristna trú og skýringu hennar á veru- leikanum. Kristin trú metur hinn sýnilega varLl leik í Ijósi þess, er Guð hefur t>irt mönnum fyrir munn spámanna og P°st' ula. Sá, sem er kristinn, hann treyst,r Guði, skaparanum, og felur honum lausn hverrar gátu. Sá, sem er kristinn og treystir Guði, skaparanum, tianJ1 þakkar Guði ætíð, er hann leysir t! ^ tekna gátu. M. ö. o. kristinn maðul j

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.