Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 74

Kirkjuritið - 01.04.1976, Side 74
því, að að minnsta kosti þetta atriði í fortíð kirkjunnar er mjög á döfinni enn í dag. Og tilraunir samtímans til þess að jafna þennan ágreining benda til lífsmarks með kirkjunni. Vér förum nú lengra aftur í tímann og komum að miðöldum, tímabili hinna gotnesku dómkirkna, krossferðanna, hinna miklu kerfa laga og stjórnunar og hátimbraðrar heimspeki skólastík- urinnar. í þann tíð var Evrópa „kristin- dómurinn“. Fremstir í menningu þessa tíma voru menn, sem vildu túlka og hagnýta grundvallarreglur kristinnar trúar, þótt mjög gæti þeim yfirsést á stundum. En án kirkjunnar væru mið- aldirnar tómarúm í sögunni. Á undan miðöldum var dimma öldin. Þá braut Evrópa smátt og smátt af sér þær viðjar, sem hnignun Rómaveldis og skrælingjainnrásir höfðu hneppt hana í. Kirkjan var sú stofnun, sem brúaði bilið milli gömlu menningarinn- ar og hinnar nýju, sem koma átti. Kirkjan varðveitti leifar laga, réttar og mannúðar. Fyrir tilstilli múnkaregln- anna gekk hún á undan í endurnýjun landbúnaðar og handverks og lagði grundvöll að lærdómi og menntun. Erfitt er að ímynda sér, hvað orðið hefði úr óskapnaði hinnar dimmu ald- ar, ef kirkjunnar hefði ekki notið við. Hinum megin við þetta bil var róm- verska heimsveldið, síðasti útvörður hinnar eldri menningar. Undir stjórn Konstantíns mikla hafði Róm forystu um stjórn kristinnar kirkju. Smám saman fór kirkjan að taka hið verald- lega kerfi í sína vörslu og geymdi það lífvænlegasta úr því handa eftirkom- endunum. Ofsóknir, sem Konstantín batt enda á, höfðu verið spurning um 72 að lifa af eða deyja út af. En kirkjan hélt velli, ekki einvörðungu af því hún átti trú, þrautseigju og hugrekki, held- ur einnig af hinu, að hún hafði sann- að yfirburði sína yfir keppinautum sín- um. Að baki Konstantíns verður fyrir tveggja og hálfrar aldar barátta, stund- um Ijós, stundum leynd. Aldrei var þó nokkur keisari að fullu laus við áhyggj" ur af hinu „kristna vandamáli". Nálægt upphafi þessara átaka, bréfuðu tveir rómverskir höfundar álit sitt á þessum „vanda“ samtíðar sinnar. A öndverðri annarri öld var Gaius Plinius Secundus með því nafni land- stjóri rómverska skattlandsins Bithinyu í Litlu-Asíu. Þessi maður, sem er venjulega nefndur Plinius yngri, skrifaði Trajanusi keisara bréf, þar sem hann greinir frá ýmislegu vandræði, sem hann á í höggi við.1). Þar á meðal eru verkföll, opinber hneyksli og óánægj3 með stjórnarfarið. En auk þess ber a trúarlegum óróa. Mörg hof, skrifar hann, eru nærri tóm, og í sumum þeirra hafa guðsþjónustur verið aflagðar með öllu. Það er fullkomið verðhrun, segír hann, á kjötmarkaðinum, því að nu kaupir enginn lengur kjöt af fórnardýf' unum, svo sem annars vera ber. Al|( er þetta að kenna, að því er honum hefur verið tjáð, einhverjum rnönnum. sem kalla sig ,,kristna“ og stoína^ hafa leynifélagsskap, til alls vísan °g áreiðanlega ótrúan heimsveldinu, Þaí sem félagsmenn neita að færa keisaræ guðinum fórnir. Þar kom, að fjo1 þessara manna var tekinn höndum °9 færður fyrir rétt. Málsrannsókn, skrifar landstjórinn, leiddi ekkert saknæmt Ijós. Helst, að vart yrði við „nokku

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.