Kirkjuritið - 01.06.1978, Page 20

Kirkjuritið - 01.06.1978, Page 20
frá þeim tíma þegar Innréttingar Skúla Magnússonar fógeta voru reistar við Aðalstræti hér í Reykjavík um miðja 18. öld. Þessi íslenzki fræðimaður vakti athygli skjalavarð- arins danska á því, að verkamenn og iðnaðarmenn íslenzkir, sem þar höfðu unnið að, rituðu eigin hendi fullt nafn sitt undir launakvittanir sínar, en danskir margir hefðu sett kross undir eða annað það tákn, sem þeir völdu sér, þar sem þeir kunnu ekki að skrifa. Skjalavörðurinn spurði þá hvernig þetta mætti vera. „ís- lenzku prestarnirsáu um það, að sem flestir væru læsir og skrifandi, annað þótti ekki sæma með bókmennta- þjóð," svaraði íslendingurinn. íslenzkir prestar hafa þurft að þræða hinn gullna meðalveg öðrum fremur í orðum og athöfnum. Að sjálfsögðu hefur það gengið mjög misjafnlega oft á tíðum, því þeim hef- ur sem öðrum verið „gefinn fleinn í holdið", líkama og sál, sem suma hef- urstundum leitt af réttri leiðef byggja má á því, sem segir í annálum. Og hefur það þá, ef satt reynist, sannast í nokkrum mæli á prestum, sem Páll postuli frá Tarsus segir um sjálfan sig í öngum sínum: „Því það góða, sem ég vil, gjöri ég ekki, en hið vonda, sem ég ekki vil, það gjöri ég.“ Þetta hefur um ár og aldir verið mikill ásteyting- arsteinn, mörgu frómu íslensku guðsbarni til dómsáfellis prestum, þótt ekki hefði verið um sakast, ef aðrirhefðuátthlutað. Kímnisögur af prestum hafa lifað og dafnað með þjóð vorri allt frá önd- verðu, og oft af litlu tilefni og ómerki- legu orðið til í alþýðu munni stórkost- 98 legar frásagnir af prestum, sem sagð- ar hafa verið og skráðar, bæði sannar vafalaust og lognar, margar frábær- lega vel stílfærðar. Frá upphafi er þetta mikill lítteratúr orðinn og sem slíkur merkilegur fyrir það að vera einskonar gjafsókn almennings á mannorð presta, lífs og liðinna, sem engum vörnum mega við koma. En íslendingum hefurþóttvæntum presta sína flesta, hygg ég að segja megi, og þess vegna tel ég, að við megum vel við una slíkar gælur al- mennings sem þessar, þótt nokkuð hvimleiðar geti stundum verið. Fyrir mörgum árum las ég ferða- sögubrot rithöfundar nokkurs, sem þá var enn ungur að árum. Hanrj sagði frá því, er hann kom ofan af heiðum og bar að garði prestsseturs nokkurs í afskekktri sveit, og baðst gistingar þar eins og þeir félagar’ Sölvi Helgason, Símon Dalaskáld u9 ritari hans Guðmundur dúllai'1- frændi okkar sr. Árna Pálssonar, o9 fleiri menningarfrömuðir horfinna tíma. Skáldið unga, sem hér var á f'&o, var leitt til stofu og átti langar við- ræður við prestinn. Gestinum var borinn matur og gisting var til reiðu- Skáldið segir fátt um viðræðurnar, sem munu hafa verið heldur hvers dagslegar, aðallega fjallað um ma, kaffidrykkju og kökur, að því er vir ist. Sýnist mér að prestur hafi fremu vikið sér undan að ræða hugðare n_ gestsins, skringilegheit í hátter sóknarbarnanna, kynleg tilsV þeirra og spaugilegan talsmáta, 0 birgð í sveitinni og niðurlægjancil tækt, umkomuleysi manna, kúgun o

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.