Kirkjuritið - 01.06.1978, Síða 22
myndu vera að finna á Brjánslæk um
kirkjubygginguna og ákvað því að
aka þangað í skyndi 60-70 km leið til
að ganga úr skugga um þetta. Þegar
þangað kom átti ég tal við ábúanda,
glöggan og greindan mann, en hann
var aðkomumaður í héraðið og
kvaðst vera þessu ókunnugur.
Gekk ég þá upp í kirkju, því að með
sjálfum mér þóttist ég vita, að ég væri
ekki að fara erindisleysu. Hlerar voru
fyrir gluggum og dimmt inni í kirkj-
unni. Ég gekk rakleiðis að' altari og
þreifaði þar fyrir mér, og fann þar bók
þegar í stað, sem varð mér til mikils
hagræðis í vanda mínum, kirkju-
reikningabók Brjánslækjarkirkju
með dagsetningunni 22. maí 1907 á
títilblaði, alla færða af sr. Bjarna Sím-
onarsyni með natni og prýði.
Kirkjureikningar þessireru um margt
athyglisverðir, einkum þó fyrir það,
að þær fjárupphæðir, sem þar eru
færðar kirkjunni til tekna mun sr.
Bjarni að mestu hafa greitt úr eigin
vasa og ekki hafa haft mörg orð um.
Sr. Bjarni var elskulegur og hlýr faðir
sóknarbarna sinna, vammlaus og
vítalaus drengskaparmaður.
Var það táknrænt fyrir hann, sem
sóknarbörn hans sögðu mér, að hann
hafi aldrei viljað ótilneyddur slökkva
Ijós, en var manna fúsastur til að
tendra þau.
Sr. Bjarna Símonarson vildi ég
mega hafa sem dæmi, sem einskonar
samnefnara fyrir alla góða presta fyrr
og síðar, sem njóta og notið hafa
þeirrar náðar Guðs að geta verið
meðbræðrum sínum sannir leiðtogar
í þrautum daganna, sönn fyrirmynd
þeirrar göfugu listar að kunna að lifa
vel og fallega sjálfum sér og öðrum til
blessunar, - veratrúr köllun sinni allt
til dauða. Sr. Bjarni andaðist í Rauðs-
dal á Barðaströnd, er hann var á yfir-
reið um prestakall sitt þann 16. marz
árið 1930.
Það er senn komið að leiðarlokum-
Allri þjónustu lýkur fyrr eða síðar,
bæði hjá mérog ykkur, bræðurgóðir-
Ég fagna því að hafa fengið tæki-
færi til að vinna fyrir Prestafélag
íslands um árabil í ,,viðreisnarstjórn-
um‘‘ félagsins með góðum drengjum,
framsýnum og ötulum. Og vissulega
höfum vfð haft árangur sem erfiði 1
fjölmörgum málum, sem varða heiH
okkar, og margur vandi verið leystut
á hinum seinustu árum.
Ég vil árna Prestafélagi íslands
allra heilla og blessunar um ókomm
ár, og ykkur kæru bræður og systuh
prestar og prestskonur, auðnu oQ
lífshamingju, blessunar Guðs um
ófarinn veg.
100