Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 31
^r' S'9urbjörn Einarsson
man að undanförnu annast þessi
samskipti af íslands hálfu. Þau lögðu
mikið af mörkum til ráðstefnunnar í
Skálholti. Sr. Jón er nú þingforseti
þessara alþjóðlegu samtaka.
Stjórnir hjálparstofnana kirkjunnar
á Norðurlöndum höfðu fulltrúafund
hér einnig í september, haldinn í
Skálholti og í Reykjavík. Hjálpar-
stofnun íslenzku kirkjunnar var gest-
gjafi fundarins. Það hefur vakið at-
hygli, hve framlag hennartil þróunar-
og hungurhjálpar er orðið hlutfalls-
lega mikið. Mér hefur orðið það sér-
stök gleði og þakkarefni að íslenzka
kirkjan hefur á fáum árum fótað sig
farsællega á þessum mikilvæga vett-
vangi. Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að láta þakkir í Ijós fyrir undir-
tektir við kirkjuna, þegar hún mæltist
til fórnar á föstu. Það vantar ekki líkn-
arhug á íslandi. En stundum ergóður
hugur handalaus. Hjálparstofnun
kirkjunnar vildi verða hönd til þjón-
ustu, til meðalgöngu um að koma
líknarvilja fram. Þjóðin hefur metið
það. Þökk sé henni og öllum, sem að
því hafa stuðlað. Ég vísa til ýtarlegrar
skýrslu, sem hér liggur fyrir frá Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, svo og til ann-
arra fjölritaðra skýrslna, sem mjög
fylla út í þá umgjörð, sem ég dreg
með orðum mínum hér.
Afmæli félaga
Prestafélag Suðurlands varð fertugt
á árinu. Það hefur, eins og aðrar
deildir Prestafélags íslands, átt góð-
an og gildan þátt í að efla kynni presta
í milli og vekja til umhugsunar um
mikilvæg kirkjunnar mál. Ég flyt fé-
109