Kirkjuritið - 01.06.1978, Side 32
laginu samfagnaðarkveðjur og árn-
aðaróskir prestastefnunnar.
í sambandi við þessa prestastefnu
minnist Prestafélag íslands 60 ára af-
mælis síns. Það félag er næsta ná-
komið prestastefnunni, svo sem aug-
Ijóst er, þótt aldursmunursé mikill og
mörk dregin milli hlutverka. Félagið
var stofnað á prestastefnu að tillögu
þáverandi forseta hennar, dr. Jóns
Helgasonar. Ósk hans og spá um
það, að stétt og kirkja myndu ábatast
af tilveru slíks félags, hefur vissulega
ræzt. Fylgi því Guðs gifta alla tíð.
Komandi ár
Hér hef ég litið svipsinnis yfir liðið ár.
Árin koma og fara hratt hjá. Þannig
hafa þau liðið lífsár vor, sem höfum
þegið þau mörg, og árin áður, sem
urðu aldir fyrr en varði. íslands þús-
und ár er vængjað stef í dýrum söng.
Það líður að því, að kristnu árin á ís-
landi verði þúsund. Eftir þrjú ár er
þess að minnast að Þorvaldur fór
með dóm inn dýra á vit landa sinna.
Kristniboðinn, sem hóf þá sókn, sem
lyktaði með sigrinum minnisstæða á
Þingvelli, en þau urðu bezt tíðindi á
íslandi, segir sannfróð heimild forn,
sá maður verður með réttu talinn tím-
amótamaður og tímadagur þegar
hann í hlýðni við himneskavitjun kom
hingað til lands helgra erinda. Víst er,
að kristnir menn á íslandi munu
minnast þess eftir 3 ár, sem við bar
árið 981. Sú minning vísar fram til
aldamótanna, kristnitökunnar.
Næsta stóra þjóðhátíðarár, árið
2000, er sem sagt ekki langt undan.
Þegar ég gaf prestastefnu þessa árs
yfirskriftina: Kirkja komandi ára, þá
110
má nærri geta, að ekki ætlaði ég
þessum fundi að fara að spyrja og spá
út í framtíðina. Það vakti fyrir mér, að
þær sögulegu staðreyndir, sem ég
hef nú bent á, yrðu tilefni til íhugunar,
áminningar, brýningar. Kristna þjóð í
þúsund ár, hvers áttu að minnast?
Hvað áttu að þakka? Hvarertu stödd?
Hvert stefnir þú? Kirkjan mun á sín-
um tíma huga að því, hvernig halda
skuli hátíð á Þingvelli árið 2000,
sambærilega við alþingishátíð og
landnámshátíð. En að litlu einu leyti
mun hugur hennar snúast um þetta
út af fyrir sig á næstunni. Kirkja kom-
andi ára hlýtur fyrst og fremst í Ijós'
þeirra minninga, sem hér er um að
ræða og með þær að hvata að
skoða stöðu sína, íhuga ætlunarverk
sitt, og það hvernig hún stendur að
verki, hún þarf að athuga tygi sín,
hvernig þau duga, og leita nýrra tygja
samkvæmt því sem tímarnir krefjast
og aðstaðan er nú.
Undanfarin ár hefur að frumkvseð'
prestastefnunnar verið unnið að at-
hugun á starfsháttum kirkjunnar o9
merkar tillögur komið fram um ný-
skipan ýmissa atriða í skipulagi og
vinnulagi. En innviðir skipta mestu^
Sá einn her dugir, sem er væddur hi
innra. Kristin sókn á íslandi. Það er
kjörorðið sem vér göngumst undir og
samstillumst um á þessari presta-
stefnu. Kristniboð hófst árið 981-
lauk ekki árið 1000. Það er ævaran '
hlutverk kristinnar kirkju, hlutver
hennar allt. Þjóðin gekkst ekki undi
merki Krists í eitt skipti fyrir öll.
er kynslóðir, sem koma og fara, lser
og gleyma, mönnunum munar anna
hvort aftur á bak ellegar nokkuð