Kirkjuritið - 01.06.1978, Síða 40
eru skyldaðir til tímasóknar svo sem
75-80 af hundraði til að fá nám-
skeiðið viðurkennt. Það á helzt við
um kennimannlegt nám eða vett-
vangsþjálfun. Og því má skjóta hér
inn í, að lán úr lánasjóði eru undir
því komin, að stúdent Ijúki tilskyld-
um prófum, tilteknum fjölda nám-
skeiða og eininga. Þá er þess enn að
geta um nýju reglugjörðina, að í
kjarna námsins eru 125 einingar, 15
einingar taka stúdentar svo á kjör-
sviði og loks 10 einingar í frjálsu
námi. Kjarni er nám, sem allir hljóta
að Ijúka. Kjörsvið er vísindalegt sér-
fræðinám. Þar er stúdentum gefinn
kostur á að dýpka þekkingu sína á
tilteknu áhugasvið innan deildar.
Frjálst nám geta menn aftur stundað
í smáskömmtum, ef þeim svo sýnist,
og þeim er heimilt að sækja nám í
aðrar deildir Háskólans, ef þeir hafa
hug á og henta þykir.
Vitanlega geta menn ekki tekið
námsgreinar í þeirri röð, sem þeim
sýnist, heldur verður það að fara að
nokkru eftir föstum reglum, ein
námsgrein getur verið forkrafa ann-
arrar o. s. frv. Og skipan námskeiða í
brautir eða ferla, sem svo eru kall-
aðir, hefir smám saman tekið á sig
skýrari mynd eftir því, sem tímar
hafa liðið.
Um þessar mundir er einmitt verið
að ganga frá nýrri reglugjörð, sem
fyrst og fremst er fínslípuð útgáfa af
reglugjörðinni frá 30. ágúst 1974,
samtímis því, sem verið er að hefla
til reglugjörðir handa öðrum deild-
um Háskólans.
Því ber ekki að neita, að sumum
þykir kennimannlegum greinum
hafa verið skorinn helzti þröngur
stakkur, þegar gengið var frá nýrri
reglugjörð fyrir 4 árum. Undanfarin
4-6 misseri hafa einstakir kennarar
ásamt fulltrúum stúdenta lagt mjög
mikla vinnu í skipulagningu náms og
samningu þessarar nýju reglugjörð-
ar og þá ekki sízt vegna kennimann-
lega námsins. Vill svo til, að ekki er
ósennilegt, að deildarfundur gangi
endanlega frá tillögum sínum að
nýju reglugjörðinni nú um mánaða-
mótin, ef að líkum lætur, samt með
þeim fyrirvara, að staða kennimann-
legs náms verður vonandi endur-
metin enn frekar á næstu rnisserum
og undir það rennt styrkari stoðum.
Þá hlýðir að geta þess, að nú orðið
er hægt að stunda B. A. nám í guð-
fræðideild, og væntanlega verður
unnt að Ijúka þaðan fullgildu B. A
prófi er stundir líða. Hingað til hafa
B. A. stúdentar í guðfræði orðið að
sækja hluta námsins í aðrar deildm
þar sem eðillega hefir þótt rétt að
halda stillt af stað með þessa ný'
lundu.
Þetta verður að nægja að sinni um
fyrirkomulag námsins í guðfraeði'
deild, og hlýðir þá að fara nokkrum
orðum um, hvert markmið þessa
námssé.
Ætli ekki, að við séum sammaia
um, að hlutverk guðfræðideildar a
frá 1911 hafi verið og sé enn sama
og Prestaskólans frá 1847, að vei a
guðfræðistúdentum eins haldgóða
menntun til þess að gegna prests
embætti í íslenzku kirkjunni og.unn^
er? Auk þess hefir menntun deilda^
innar almennara gildi, að brautsk
vel menntaða guðfræðinga, se
118