Kirkjuritið - 01.06.1978, Page 42

Kirkjuritið - 01.06.1978, Page 42
starf og vel það úr, af því að ég hefi það skjalfest í greinargjörð um kenni- mannlegt nám undirritaðri í dymbi)- viku 1977. Þarsegir m. a. um kennslu í ræðugjörð eða predikunarfræði: „Einnig skal stefnt að því að fá til lið- sinnis kennara utan deildar, svo sem presta með mikla predikunarreynslu og einnig unga presta, þar sem reynsla fyrstu prestskaparára er fersk og nærtæk." Og hvernig svo sem þessari einstöku hugmynd reiðir af, þá er ég í engum vafa um, að það geturverið guðfræðideild ávinningur að fá einstaka presta að liðsauka við kennsluna, enda hefir það raunar tíðkazt öðru hverju. En þessu mætti koma á einhvern fastan grunn og al- veg tímabært að hugleiða og ræða fyrirkomulag þvílíkrar samvinnu hér og nú, þegar væntanlega líðurað því, að reglugjörð hleypi heimadragan- um. Ensnúum okkurþáaðendurnýjun- armenntuninni. Þetta fyrirbæri eða hliðstætt því gengur undir mörgum nöfnum eftir því, frá hvaða sjónar- horni horft er á það, eins og símennt- un, endurmenntun, viðhaldsmennt- un, eftirmenntun, framhaldsmennt- un. Leyfi ég mér þá fyrst að vitna í aðra greinargjörð um kennimannlegt nám samda í apríl s. I., þar sem segir m. a.: ,,Þá ber að stuðla að því, svo sem kostur er, að sóknarprestum verði gjört kleift að afla sér endurnýj- unarmenntunar á vegum guðfræði- deildar, en þar er undir högg að sækja hjá fleiri aðilum (en guðfræði- deild og prestastétt). Þvílíkt nám ætti raunar að vera skylda." Nú er að virða þetta fyrir sér nokkru gerr. Sú hugmynd hefirverið reynd á seinustu árum, að deildin efndi til stuttra námskeiða eða umræðufunda utan Háskólans í samvinnu við sókn- arpresta. Er þess skemmst að minn- ast, að s. I. vetur fóru kennarar ásamt stúdentum til Innri-Njarðvíkur í boði sóknarprestsins þar, sem átti ríkan þátt í að gæða dagstundina lífi ásamt sóknarprestinum í Keflavík. Við- fangsefni þessa fundar var boðun orðsins. Má segja, að þarna hafi pre- dikunin verið gegnumlýst þátttak- endum til gagns og sálubótar. A heimleiðinni var létt yfir mannskapn- um, sem þótti deginum hafa verið vel varið. Þegar þessi efni ber á góma í umræðu kennara deildarinnar, kem- ur einatt fram, að þeir gjöra sér þess glögga grein, ef sá draumur á eftir að rætast að efna til námskeiða innan veggja Háskólans, þar sem sóknar- prestar væru þátttakendur, hversu veigamikið þetta gæti orðið í þá veru að móta deildina, hvílíkurfengur vseri að fá presta með margháttaða reynslu sína til að sitja á bekk með stúdentum, sem munar í andblæ prestlegri þjónustu og prestlegu starfi. Þannig yrðu prestar ekki að- eins þiggjendur, ef til þvílíkra sam- vista yrði stofnað, heldur einnig veit- endur, kannski ekki síður veitendur, þegar öllu er á botninn hvolft. í þeim tillögum um kennimannleg nám, sem líkur eru til að hljóti af- greiðslu innar tíðar, er m. a. gjört ra fyrir viðamiklum valbálkum, sern stúdentum gefst kostur á að velja a milli að loknu fornámi eða inngangs' námi. Þessi námskeið, sem yrðu umsjá margra kennara, standa væri - 120

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.