Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 43
anlega heilan vetur. Þarna verður
reynt að kryfja viðfangsefni til mergj-
ar- og þau verða stúdentum vafalítið
lasrdómsrík, einnig sóknarprestum
hvort sem þeir væru þátttakendur
Sern kennendur eða nemendur. En í
Þvílíkum samstarfshópum hljóta
raunar allir þátttakendur að fara með
hvort tveggja hlutverkið að nokkru
aiarki. En í hreinskilni sagt hefi ég
ekki trú á, að sóknarprestar gæfu sér
tórT1 né hefðu aðstöðu til að sækja
þannig eins og tveggja missera nám-
ske'ð. Miklu fremur er ég þeirrar
sk°ðunar, að efna beri til stuttra,
hnitmiðaðra námskeiða, þar sem
k°mi til margir leiðbeinendur bæði úr
r°öum manna utan deildar og innan.
I'k námskeið ætti að skipuleggja
löngum fyrirvara og kynna þau
e9 efni þeirra rækilega fyrir prestum
Vort sem þau standa í deildinni eða
uten hennar. Þessi stuttu og virku
^mskeið gætu raunar í sumum til-
ellum verið þættir langra námskeiða
°9 þyrftu þannig ekki endilega að
Vera utan við hefðbundið nám deild-
erinnar.
1 Þýzkalandi er prestum, a. m. k. í
eumum ríkjum, skylt að sækja nám-
eið eftir föstum reglum. Vitanlega
r Prestaköllum þeirra séð fyrir auka-
J°nustu á meðan, auk þess sem
atttaka þeirra í námskeiðinu er þeim
e° öllu að kostnaðarlausu, sóknin
rejðir þá einnig fæði þeirra og húsa-
bvT ^ att' Þess kost taka Þátt'
1 lku námskeiði í fyrra sumar. Og
Vev"fann Þess Þa’ Þegar mér
fe-'tlst tækifæri að fá nasasjón af því
Urri narle9a starfi í mismunandi löng-
namskeiðum og málþingum, sem
í sífellu tóku við hvert af öðru árið um
kring og einatt mörg samtímis þarna í
aðalstöðvum kirkjunnar í Vestfalen,
hversu þvílíkt starf er hryggilega í
molum hjá okkur vegna fámennis og
fátæktar kirkjunnar. En stundum
hlýtur okkur líka að verða að spyrja:
Gætum við ekki agnarlitlu meira, ef
við værum dulitlu ótrauðari og riðum
á vaðið? Og það var þetta, sem ég átti
við í ívitnaðri tillögu, sem lesin var
áðan, þar sem komizt er svo að orði,
að undir högg sé að sækja hjáfleirum
en guðfræðideild og prestastétt. Hér
er nefnilega á ferðinni kjaramál, ekki
aðeins í þeim skilningi, að prestum
yrði ekki að endurnýjunarmenntun
hvimleiður og þungur fjárhagslegur
baggi, heldur einnig þannig, að full-
komlega er réttmætt, að það væri séð
við presta í launagreiðslum, er þeir
hefðu aflað sér sérmenntunar í til-
teknum greinum, eftir föstum regl-
um, því ekki bítur ráðuneytið eða
launagreiðandinn á litla lýsisbeitu, ef
að líkum lætur.
Fyrir áratugum áttu nokkrir guð-
fræðistúdentar kost á að starfa með
sóknarprestum að sumarlagi. Þetta
féll svo niður, en seinustu sumur hefir
þráðurinn verið tekinn upp aftur.
Kristnisjóður hefir lagt fram dálitla
fjárupphæð, svo að tveir guðfræði-
stúdentar hafa getað hlotið þessa
dýrmætu reynslu eða vettvangsþjálf-
un hluta úr sumri að undanförnu. í
greinargjörð um kennimannlegt nám
frá s. I. vetri segir svo um þetta efni:
,,Stefna skal að því, að öllum stúdent-
um deildarinnar gefist, áður en þeir
Ijúka embættisprófi, kostur á að
starfa með sóknarpresti og fá laun
121