Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 50
Sigurður Pálsson kennari og Þórey
Kolbeins kennari. Áður hafði verið
starfandi á vegum kirkjunnar og
menntamálaráðuneytisins nefnd, er
hafði sett fram tillögur að markmiðs-
greinum fyrir kennslu í kristnum
fræðum.
Nefndin skilaði áliti á árinu 1976 og
síðar sama ár gaf menntamálaráðu-
neytið út nýja námskrá í kristnum
fræðum á grunnskólastigi, sem fól í
sér óverulegar breytingar frá nefnd-
arálitinu aðrar en þær að gert er ráð
fyrir að kennsla kristinna fræða hefj-
ist á 2. námsári í stað hins fyrsta eins
og nefndin hafði lagttil.
Helstu breytingar sem hin nýja
námskrá felur í sér eru þær, að gert er
ráð fyrir að kennsla kristinna fræða
hefjist á 2. námsári í stað hins fjórða
áður og kennt sé allt til 9. árs eða til
loka grunnskólans. Lögð er áhersla á
tengsl námsefnisins við daglegt líf
nemandans og að kennslan hæfi
þroska hans og getu. Aukin áhersla
er lögð á siðfræðileg viðfangsefni í
Ijósi kristinnar trúar, kirkjusaga og
starf kirkjunnar unnið af leikum og
lærðum er hluti námsefnisins flest
námsárin, gert er ráð fyrir fæðslu um
helstu kirkjudeildir og sértrúarflokka,
auk þess sem trúfræði fær aukið rými
í kennslunni. Ennfremur er gert ráð
fyrir að notkun Nýja testamentisins
verði aukin í kennslunni og nemend-
ur fræddir nokkuð um tilurð þess og
lesi á námstímanum a. m. k. eitt rit í
samhengi með lauslegum skýring-
um. Hin nýja námskrá segir einnig
fyrir um fræðslu um önnur helstu trú-
arbrögð og samanburð á þeim og
kristnum dómi. Að lokum er gert ráð
fyrir að tengsl við aðrar námsgreinar
verði aukin.
Um kennsluna og val námsefnisins
segir svo í hinni nýju námskrá: Æski-
legt er að við skipulag kennslu í
kristnum fræðum og val á kennsluað-
ferðum sé tillit tekið til a. m. k. þriggja
eftirtalinnaatriða:
1. nemandans og gildis efnisins fyi'ir
hann og þá einnig áhugasviðs hans
og spurninga. Hér ber að hafa í huga
bæði núverandi og að því marki sem
mögulegt er framtíðaraðstæður
hans,
2. krafna samfélagsins og ósk varð-
andi fræðslu og uppeldi sbr. það
sem fram kemur t. d. í lögum um
grunnskóla og markmiðsgreinurn
námskrár í kristnum fræðum,
3. fræðigreinarinnar (í þessu tilviki fyrst
og fremst guðfræðinnar) og skiln-
ings hennar á sjálfri sér.
Segja má að námskráin sé í heild
efnis-miðlæg án þess að forsendum
og þörfum nemandans á hinum ýmsu
þroskastigum sé gleymt. Kemur til
kasta námsefnishöfunda að láta
þessa tvo þætti, námsefnið og þrosk-
astig nemandans, leika saman með
eðlilegum hætti.
Lagt var til að heildarkennslu-
stundafjöldi í kristnum fræðum í 1- "
9. bekk yrði 12 stundir. Ekki er enn
Ijóst hve greininni verða ætlaðar
margar kennslustundir enda getur ny
námskrá tæpast öðlast gildi að fm|LJ
fyrr en gefið hefur verið út nýtt náms-
efni sem samrýmist þeim kröfum sem
hún gerir.
128