Kirkjuritið - 01.06.1978, Qupperneq 69
ÞÁTTUR UM GUÐFRÆÐI
ARTICULI CH RISTIANAE DOCTRINAE
^ARTIN LUTHER:
Háttur messu og bergingar
VENERABILI IN CHRISTO D. NICOLAO HAUSMANN EPISCOPO
CYGNEAE ECCLESIAE IN CHRISTO SANCTO MART. LUTHER1.
hins æruverðuga í Kristi, herra
Nikulásar Hausmann, biskups- í Zwic-
kaukirkju í heilögum Kristi. Mart.
Luther.
Liann óskar náðar og friðar í Kristi.
^il Þessa hefi eg unnið meðal fólks-
ins með bókum og predikunum að því
snúa hjörtum þeirra frá guðlausum
skoðunum á ytri siðums, vegna þess
að eg hefi álitið það kristið og til-
hiýðilegt, ef eg gæti orðið til þess, að
sú viðurstyggð, sem Satan hefir sett
a helgan stað með hjálp syndarinnar
j^anns,4 verði afmáð án valdbeitingar.
ess vegna hefi eg hvorki beitt valdi
valdboði, né hefi eg sett nýtt í
^aðinn fyrir gamalt, enda sífellt verið
ægfara og hræddur sakir hinna veik-
yndu í trúnni og ekki er hægt að taka
yðingin er gerð eftir latínutexta Weimar-
9áfu 12:201nn og 12:205nn. Formula missae
6 Oornrnunionis. Til hliðsjónar var höfð þýð-
!n? Paul Speratus á þýzku frá 1524 eins og
un er prentuð í Altenborgarútgáfu 1661.
skyndilega frá þeim hið gamla né inn-
leiða nýjan og óvenjulegan hátt til að
tilbiðja Guð með — eða miklu fremur
sakir hins léttúðuga anda þeirra og að-
finnslusama, sem trúlausir og hugs-
unarlausir eins og óhrein svín, villast
og fagna vegna nýnæmisins eins, en
ávallt er hið nýja hefir horfið velgir
þá við. Engir eru eins þreytandi og
slíkir menn, og svo sem þeir eru í
öðrum efnum, þá eru þeir í helgum
sökum erfiðastir og óþolandi. Engu
að síður hlýt eg að umbera þá, þótt eg
sé að rifna af reiði, nema eg vildi taka
sjálft fagnaðarerindið frá almenningi.
En nú, þegar þess er von, að hjörtu
margra hafi verið upplýst og styrkt
fyrir Guðs náð, og þar eð sjálft mál-
efnið krefst þess, að viðurstyggðin
verði rekin burt úr ríki Krists, þá verð-
2 Episkopus merkir hér prestur.
3 ceremonia.
4 Matt. 24:15; II. Þess. 2:3.
147