Jörð - 01.02.1940, Page 47

Jörð - 01.02.1940, Page 47
verÖur að sjóÖa kringum hálf- tíma á eldi. En svo ver'ður aÖ bregða matnum snöggvast yfir eld, um leið og hann er borinn fram. ÆtliS þið bara nógan tíma til moðsunðunnar." „Það eru nú víst annars margar aðferðir, sem nota mætti til þess að draga úr eldsneytis- kostnaði,“ segir fornvina mín (ég mundi nú, að í gamla daga gróf hún upp úr bókum og blöð- um allar mögulegar nýjungar, er hagnýtar mætti telja, og bjó mig nú undir að hlusta á er- indi ekki fyrirferðarminna en það, er konan mín hafði flutt nreð svo miklum ágætum; minntist ég nú augnaráðs forn- vinu minnar, er Finnlendingana bar á góma, og hugðist að launa henni, með því að veita meiri athygli hinum hýru tillit- um sveitastúlkunnar okkar (þau voru nú satt að segja fvllilega þess virði, því að hún vissi auð- sjáanlega sjálf ekkert af þessum þögulu ávörpum sínum). „Það eru allskonar áhöld til,“ hélt nú fornvina mín áfram,“ allskonar áhöld, stærri og smærri, sem eru ávextir hinar hraðvaxandi tækni síðustu ára og spara eldsneyti til verulegra muna. Auðvitað kostar talsvert að eignast þau, sum hver, en það getur borgað sig ágætlega engu að síður. Hugs- ið ykkur t. d. Aga-eldavéUna, þar sem svo stendur á, að kon- an verður að hafa ein á hendi verkin á stóru heimili. Það má JÖRÐ mikið vera, ef ekki má spara bæði farmrúm, svo um munar, og erlendan gjaldeyri, áður en langt um líður, ef yfirvöldin gengju nú að því með nokkurri samkvæmni og festu og athug- un, að láta flytja inn í landið allar nýjungar á þessu sviði, sem áunnið hafa sér almenna viður- kenningu og allir nota í ná- grannalöndunum — segjum Sví- þjóð og Bretlandi, — og þvi ekki að læra af Ameríkumönn- um líka; við verðum hvort eð er líklega rnargt til þeirra að sækja fyrst um sinn.“ (Forn- vina mín tók sér málhvíld, enda var kaffi enn í bollanum henn- ar. Eg gat þegar til kom ekki að mér gert að hlusta á hana — það mikið hafði eg dáðst að henni í skólanum í gamla daga, þegar allur veraldarinnar vís- dómur virtist gjósa upp úr hennar fagra hálsi, — hvílík fyrirmynd fyrir gosbrunni! datt mér nú í hug). „Það eru nú t. d. gufusuðupottarnir“ hélt hún áfram, „í tveimur og þrem- ur hœðum. Það er ekki ama- legt, skal ég segja ykkur — eft- ir því, sem ég hefi lesið — að geta soðið fjölbreytta máltíð á einu holi — auk þess, sem það er miklu betri meðferð á holl- ustuefnum t. d. garðmatar, að gufusjóða, heldur en sjóða í kannski miklu vatni, eins og ég er viss um, að margar gera, og hella svo vatninu burt með öll- um steinefnunum og fjörefnun- 45

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.