Prestafélagsritið - 01.01.1927, Qupperneq 8
4
Jón Helgason:
Prestafélagsritið.
inn. En til þess þurfti nægan og hollan bókakost, svo að
augu manna gætu opnast fyrir því, að hinar evangelisku hugs-
anir, sem siðabótarmenn höfðu barist fyrir, væru í fylsta sam-
ræmi við heilaga ritningu, enda þaðan runnar og því í allan
máta kristilegar, — og réttur skilningur á tilgangi siðbótar-
innar veitast öllum almenningi. En eins og til hagaði í hinu
mikla strjálbýli hér á landi varð þessu takmarki bezt náð með
því að gefa út góð, uppbyggileg og fræðandi rit. En til þess
þurfti aftur að fá prentsmiðju setta á fót úti hér, því að
prentun íslenzkra bóka erlendis var bæði kostnaðarsöm og
miklum annmörkum bundin, sérstaklega vegna þess hve ósýnt
útlendum mönnum var um stílsetningu bóka á íslenzka tungu,
sem prentarar ekki skildu, svo að bækurnar urðu svo fullar
af prentvillum, að einatt var örðugt að komast að réttri mein-
ingu. Jón biskup Arason hafði fyrir all-löngu sett á fót prent-
smiðju — hina fyrstu hér á landi — og rekið hana með hjálp
séra Jóns Mattíassonar hins sænska. Þetta prentverk, sem
hafði verið rekið á Breiðabólsstað í Vesturhópi og vafalaust
hefir verið ærið fáskrúðugt, keypti Guðbrandur nú og fékk
það, með aðstoð Páls Sjálandsbiskups vinar síns, endurbætt
og aukið, svo að hann gat farið að nota það, og tekist að
koma í framkvæmd áformum sínum um útgáfu góðra bóka til
fróðleiks og leiðbeiningar alþýðu og prestum.
Hér er nú ekki staður til að minnast á nema hið allra
helzta af ritum þeim, er Guðbrandur lét prenta. Fyrsta ritið
var »Lífs vegur® eftir Niels Hemmingsen kennara og unnanda
Guðbrands biskups á námsárum hans. En meginafrek Guð-
brands í bókagerð hans og það, sem halda mun uppi nafni
hans meðan kristin þjóð byggir þetta land, verður prentun
heilagrar ritningar, sem þar birtist í fyrsta skifti öll í íslenzkri
þýðingu. Kom hún út fullprentuð árið 1584 og á prentun
hennar að hafa staðið yfir IV2 ár, sem þó naumast getur náð
nokkurri átt, enda þótt sagt sé, að sjö manns hafi lengst af
unnið að setningu og prentun. Sjálfur hafði biskup alla yfir-
umsjón með verkinu og er allur ytri frágangur Guðbrands-
biblíu svo ágætur, að hana má telja meistaraverk að prentun-