Lítið ungsmannsgaman - 01.01.1852, Síða 64
64
gengur lieim til sín að kveldi eptir vel aflokið
dagsverk, og faðir hans tekur á móti lionum með
{jakklátu lófataki, móðir hans með viðkvæmu
gleðitári, og unnustan með bliðu brosleitu tilliti.
3. Skaparinn befur búið til verk, og gefið
út í tveim deildum, til að uppfræða og mennta
anda mannsins. Fyrri deildin er orÖ hans; hin
síðari náttúran, og er sönn viðhafnarútgáfa. Sæll
er sá maður, sem iðuglega les í þessum ritum!
4. Settuþig aldrei út til þess, aðgjöraann-
an hlæilegan i samkvæmi, hversu mikill aumingi
sem er! Sje maðurinn heimskur, þá hefur þú
lítinn sóma afþví að gjöra gisaðhonum; ensje
hann hyggnari en þú heldur, þá getur svo farið, að
þú megir sjálfur vara þig á liæðni hans og liefnd.
5. Stjörnurnar, sem líða áfram yfir höfðum
vorum, eru eins og hróparar á víð og dreif um
allan himinn, þeir eð aldrei linna að kunngjöra
mikilleik guðs fyrir jarðbúunum. Hin h^tíðlega
þögn þessara hinna himnesku hrópara talar
tungum allra þjóða; því þegjandi tala þeir það
mál, sem hvervetna skilzt á byggðu bóli.