Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 119
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
119
Elsti ljósabúnaðurinn
var völundarsmíð
„Fyrsti vitinn hér við land var
Reykjanesviti, en hann var byggður
1878 og var kveikt á honum 1. des-
ember það ár. Síðan gerðist ekkert
fyrr en 1897, en þá voru byggðir þrír
vitar. Þeir voru Garðskagaviti,
Gróttuviti og vitinn sem stóð í
Skuggahverfinu í Reykjavík. Upp úr
aldamótunum fer svo þróunin að
verða nokkuð hröð. A þessum upp-
hafsárum voru olíulampar ljósgjafinn
í vitunum og brenndu þeir steinolíu.
Olíulamparnir kröfðust mikillar natni
af vitavörðunum, sem auk þess að sjá
um að næg olía væri fyrir hendi urðu
að gæta þess að halda kveiknum og
lömpunum hreinum og svo framveg-
is. En þess ber að geta að um aldamót-
in var ljósabúnaðurinn sérlega vand-
aður og mikið í hann lagt. Þetta var
hreinasta völundarsmíð. Allt gler var
handslípað, svo sem ljósakrónurnar
og Ijósbrjóturinn sem magnar upp
ljósið.
Þessi tæki eru enn í notkun sums
staðar úti á landi, orðin hátt í aldar-
gömul, en tvö þau elstu eru geymd
sem safngripir á Siglingastofnun.
Annað er úr eldri Garðskagavita og er
frá 1897, en að sjá sem nýtt væri. í því
tæki er sjálft ljósið fast, en ljósakrón-
an snýst í kringum það. I henni er
kastari með speglum sem gefur
ákveðið blikk á fimm sekúndna fresti.
Sérstakt klukkuverk snýr ljósakrón-
unni og knúðu það lóð sem draga
þurfti upp tvisvar á sólarhring. Þegar
þessi búnaður var fluttur í nýja Garð-
skagavitann 1944, þurfti ekki að
draga lóðin upp nema einu sinni á sól-
arhring, vegna þess hve sá viti var
miklu hærri, eða 26 metrar, og því
hægt að nota lengri strengi. Þessi
gömlu klukkuverk voru svo vönduð
að þau eru víða notuð enn, aðeins er
kornið rafmagnsdrif í staðinn fyrir
lóðin.
Til gamans má svo nefna vitann í
Dyrhólaey, en hann er reistur 1927. I
honum er klukkuverk sem upphaflega
var drifið með gasi, en er nú rafdrifið.
I þessum vita er stærsta ljósakróna í
vita hérlendis. Hún er frá 1927 og er
það stór að fullvaxinn maður getur
l'arið inn í hana. Mikið var til vitans í
Vitinn á Óshólum við Bolungarvík.
Dyrhólaey vandað og er hann mikill
og góður landtökuviti, stendur hátt og
sést í 40-50 mflna tjarlægð. Það ræðst
af bungu hafsins og því hve hátt vit-
inn stendur hve ljósið sést langt að.
Einnig hefur svo ljósmagnið sitt að
segja. En algengt er að ljósið sjáist í
16-18 mflna ljarlægð og allt niður í 7-
8 mflna fjarlægð.“
800 gashylki flutt
að vitunum árlega
„Á eftir steinolíunni kom gasið og
Gamli Garðskagavitinn, byggður
1897.
Nýi Garðskagavitinn, en hann var
fyrsti vitinn sem Tómas tók þátt í að
byggja árið 1944.