Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1925, Page 36

Eimreiðin - 01.01.1925, Page 36
32 HALLVARÐUR í NESI EIMREIÐIN einhverja aðra leið að úrlausninni, og þess vegna varpaði eg þessari spurning fram: — Hefur blóðeitran tekið Hallvarð? Því er ekki að leyna, að það var eins og Grímur læknir léti sig eitthvað um þetta varða. Hann reis frá sæti, gekk fram á gólfið og hreytti fram úr sér þessum orðum, nokkuð harkalega: — Hef eg nokkuð um það sagt? og dunaði nokkuð þungt eg og það. Það leyndi sér ekki, að nú ætlaðist Grímur læknir til að þ e s s u m spurningum mínum væri lokið, og gat eg reyndar sætt mig við það. Mig fýsti ekki að glíma lengur við stirð- lyndi hans að sinni. En réttara þótti mér þó að spyrja: — Er þá hættulaust að eg heimsæki Hallvarð og geri honum ónæði — hans vegna sjálfs? Nú stóð ekki á svarinu. — Þér ráðið ferðum yðar. Bezt að tala lítið við hann. Svo gekk Grímur læknir þvert yfir gólfið, eins og hann ætlaði út úr herberginu. Eg reis frá sæti og lét þess getið, að það mundi vera svo, að eg hefði lokið erindi mínu, og bjóst að kveðja. Skifti hann þegar mjög skapi, bað mig að koma til sín, er eg færi frá Nesi, þrýsti hönd mína hlýlega og — þakkaði mér komuna, sviphýr og brosmildur. Leið mín lá með Dalsá, yfir rennsléttar grundir og þess á milli rótlausa og beinharða mela. Eg var kominn í átthagana. Mér fanst flest brosa þar við sjón minni, og mér voru að hverfa úr huga áhrifin af fundi mínum við Grím lækni. Eg var í þeirri svipan að gleyma flestu öðru en æskustöðvunum, er mér fundust þá jafnvel fegurri en nokkuru sinni áður. En þessi hugsun mín raskaðist þó, er eg heyrði„Vjúpu kurra í móabrysti til annarar handar mér. Af háttum rjúpunnar sá eg, að hún átti hér bús og barna að gæta. Hún þusti álút og kurrandi, með hálflyftum vængj- um, fyrir fætur hestunum, óttaslegin og nærri því æðisgengin. Og það vakti eigi sízt athygli mína, að hún var sýnilega skökk og böguð og því draghölt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.