Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1925, Page 48

Eimreiðin - 01.01.1925, Page 48
44 VÍSINDI, SÁLARRANNS. OG KIRK]A EIMREIÐIN var engan bilbug á þeim að finna, er kappræðunni lauk. Sir Arthur talaði síðast og lauk ræðu sinni með þessum orðum: »Mér er ljúft að viðurkenna kurteisa framkomu andstæðings míns hér í kvöld. Við tókumst í hendur áður en sennan hófst og létum í ljós, að við bærum engan kala í brjósti hvor til annars. Eg efast ekki um, að við séum reiðubúnir til að takast í hendur aftur. En eg er sannfærður um, að hann hefði talað af minni léttúð um þetta mál, ef hann vissi um alla þá hugg- un, sem þúsundir þúsunda hafa hlotið af að kynnast því. — Eg mun gera alt, sem í mínu valdi stendur, til þess að ryðja úr vegi þeim hindrunum, sem enn varna því, að þjáð mann- kyn fái notið þeirrar miklu þekkingar, sem streymir að oss viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, þrátt fyrir það, þótt henni sé enn úthýst af þeim mörgu annars mætu drengjum, sem ekki geta felt sig við lífsskoðun, sem felur í sér algerða neitun á öllu því, sem þeir hafa verið að prédika alt sitt líf«. Það sem mest bar á í ræðu Joseph McCabe voru reng- ingarnar. Þær geta verið tvíeggjað sverð, þegar þekkingu skortir. Mótstöðumenn andahyggju verða sjálfir að rannsaka fyrirbrigðin og koma með sennilegri skýringu á þeim en fengnar eru, ef skýring andahyggjumanna á ekki að verða viðurkend sem sú rétta. Sem stendur er ekki annað sýnna en að hún sé það í hugum þeirra, sem hafa kynt sér fyrir- brigðin sjálf. Og enginn, sem þekkir nokkuð til málanna, mun lengur treystast til að neita því, að fyrirbrigðin gerist. Hér er á ferðinni ný vísindagrein, jafn raunveruleg og hver önnur hinna eldri. Og þær hinar eldri eiga ekki annars kost en viðurkenna hana áður langt um líður, og eru þegar sumar hverjar farnar að njóta góðs af henni. Sálræn vísindi eru á byrjunarstigi og framundan liggur heill undraheimur lítt eða ekki þektur. En þau eru bygð á jafntraustum grundvelli og hver önnur vísindi, og eru hugðnæmari en flest hinna. En nú er að líta á afstöðu andahyggju til kirkjunnar. Það þótti tíðindum sæta þegar sjálfur ritstjóri eins helzta málgagns ensku biskupakirkjunnar, The Guardian, bauð Sir Oliver Lodge í haust sem leið að skýra út frá sínu sjónar- miði fyrir lesendum blaðsins afstöðu andahyggju til trúar- bragða og kirkju. Sir Oliver tók boðinu og ritaði um málið í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.