Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1925, Page 56

Eimreiðin - 01.01.1925, Page 56
52 VÍSINDI, SÁLARRANNS. OG KIRKJA eimreiðiN miðlasamböndum. Illir andar geta valdið spellum. Þess eru ekki svo fá dæmi, að menn hafi orðið brjálaðir fyrir tilraunir á miðlafundum. Andahyggjan hefur tvö rík einkenni. Hið fyrra er forvitnin að skygnast inn í hið ókomna, hið síðara, að koma á sam- bandi við framliðna menn. En viðfangsefni þessa lífs eru of mikilvæg til þess að alt lendi í eilífðarspám. Og hvernig vit- um vér nema samband við framliðna menn geti tafið þá á þroskabrautinni. Bænin og náðarmeðölin koma oss í samfélag heilagra, en það er mjög vafasamt, hvort öll miðlasambönd gera það. Þetta er aðalinntakið úr andmælum Hardys prests. Það er einkum þrent, sem hann finnur andahyggjunni til foráttu: að andahyggjumenn hafi reynt að stofna til sértrúnaðar og snúið baki við kirkjunni, að tilraunir með miðla geti verið hættu- Iegar, og að andahyggjan veiki áhuga manna fyrir þessu lífi. I Ameríku, Englandi, Norðurlöndum og víðar hefur borið allmikið á því, að andahyggjumenn segðu sig úr lögum við kirkjuna og stofnuðu sérstaka söfnuði. Er því aðfinsla Hardys prests á rökum bygð. En kirkjan á hér nokkra sök á sjálf. Andúð hennar gegn málinu fældi ýmsa frá henni. Hinsvegar er þess að gæta, að allir gætnari sálarrannsóknamenn vara eindregið við því, að fylgismenn hinna nýju skoðana taki sig á nokkurn hátt út úr í kirkjulegum málum. Þeir segja eins og satt er, að hér sé ekki um nein ný trúarbrögð að ræða. Sir Oliver Lodge varar í grein sinni við öllum klofningi frá kirkj- unni. Sama hafa forgöngumenn málsins hér á landi jafnan gert. En það er á takmörkum, að kirkjan hafi altaf kunnað að meta að verðleikum þessa afstöðu. (Jm hættuna við sálarrannsóknirnar hefur oft verið talað. Þess eru ekki allfá dæmi, að lífi miðla hafi verið stofnað í hættu með heimskulegu athæfi og af vanþekkingu. Það er fjarri því að allir séu færir um að fást við sálarrannsóknir, fremur en aðrar. Það er sama fásinnan að halda, að allir geti fengist við þessar rannsóknir og að allir geti gert rann- sóknir t. d. í efnafræði. Hættur liggja alstaðar í leyni þar sem vanþekking, alvöruleysi og skortur á siðferðisþreki fær að ráða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.