Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 19

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 19
eimreiðin ÞORGEIR LJÓSVETNINGAGOÐI 115 En hvað var það þá, sem reið baggamuninn og veitti kristninni sigur? Hinir kristnu sagnaritarar vilja auðvitað láta það heita svo, að það hafi aðallega verið kraftur kristindómsins og vizka hinna ráðandi manna þjóðfélagsins, sem beygðu sig fyrir þeim krafti. Og því fá allir þeir menn, sem mest og bezt unnu að kristnitökunni, mikið lof hjá þeim fyrir viturleik sinn og aðra mannkosti, enda áttu það og að mörgu leyti skilið. Því ber og sízt að neita, að áhrif kristniboðanna í lok tí- undu aldarinnar hafi talsverð orðið, einkum Þangbrands, og að ýmsir vitrir menn og meiriháttar hafi þá af sjálfvilja og sannfæringu tekið kristni. Má þar til nefna þá Þorvald Spak- böðvarsson, Njál, Oest spaka Oddleifsson og Síðu-Hall; þó orðsending Olafs konungs Tryggvasonar hafi sjálfsagt þar um nokkru ráðið í fyrstu, að Hallur tók Þangbrand að sér, þegar allir aðrir héraðsmenn voru honum móthverfir og vildu honum enga björg veita. En allir þessir menn voru að lundar- fari svo gæfir og spakir, að næsta eðlilegt var að kenning kristindómsins félli þeim vel í geð, og betur en kjarni Asa- írúarinnar með allri sinni harðneskju, blótum og ribbaldaskap. En slíkir geðspekimenn og vitringar sem þessir menn eru iafnan fáir í hverju þjóðfélagi, svo að sigur kristninnar mundi hafa átt langt í land, ef þess hefði átt að bíða, að allur þorri manna færi að dæmum þeirra. Það voru líka aðrir eiginleikar í lundarfari Islendinga, sem meira réðu um sigur kristninnar, en geðspeki og vizka nokk- urra meiriháttar manna. Það var miklu fremur valdafíkn, met- orðagirnd og höfðingjahollusta forsprakkanna, fégirni þeirra °9 frændafylgi, sem baggamuninn reið, þó ekki væri þetta alt sameinað hjá þeim yfirleitt, heldur sitt hjá hverjum. Hvern þátt valdafíkn hinna nýju uppvaxandi höfðingja, sem hnekkja vildu hinu forna goðavaldi, hafi átt í sigri kristninnar, hefur prófessor Björn M. Olsen rakið nægilega í riti sínu »Um kristniíökuna árið 1000“, og skal því ekki hér frekar út í það farið, heldur aðeins vísa til þess, sem þar segir. Þó skal því við bætt, að í því riti er of mikil áherzla lögð á betta atriði. Það átti sinn þátt í úrslitunum, en önnur atriði réðu þó enn meira.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.