Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 40

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 40
136 ÚR FERÐABÓK HOOKERS EIMREIÐlN 1813 með nýjum viðbæti um verzlun íslendinga og fleiri smá- breytingum. Það er allmikil bók, hátt á sjötta hundrað bls. fyrri útgáfan. Mikill hluti hennar er lýsingar staða, skýrslur um jurtir sem höfundur fann, og annað slíkt. En auk þess er þar margur fróðleikur annar, sem nú hefur öllu meira g'M’ um landsháttu og hagi manna. Enn er þess að,minnast, að Hooker var samferðamaður ]örundar og var á íslandi þann tíma allan, sem hann sat að ríkjum, og féll vel á með þeim. Langur kafli í bókinni ræðir eingöngu um það mál og aðdraganda þess, og er þar að nokkuru leyti um frumheimild að ræða. Mun Hooker víst þykja nokkuð hliðhollur þeim kunningjum sínum Phelps og ]örundi í þeirri frásögn, enda höfðu þeir báðir gert honum margan greiða, og eigi verður það af ]örundi haft að honum var margt vel gefið, þó að honum hætti til að tefla nokkuð glæfralega. Hér verður eigi vikið að því, sem Hooker hefur um ]örundarbyltinguna að segja, enda hefur ]ón Þorkelsson haft það fyrir sér, er hann skrásetti bók sína um hana. Aftur er þessari grein ætlað að veita mönnum nokkura hugmynd um sumt hið helzta, sem í bókinni er að finna og ljósi varp- ar á þjóðlíf og hagi þessa tíma, en vitaskuld verður oft að fara fljótt yfir. Þýddir kaflar eru settir innan gæsalappa, og skal þess getið í eitt skifti fyrir öll, að lítt hefur verið sótzt eftir að rígbinda sig við orð frumritsins í þeim þýðingum. Bókin hefst á tileinkun til ]osephs Banks, en eftir það kemur inngangur. Segir Hooker þar fyrst frá tildrögum ferð- ar sinnar og gerir grein fyrir því efni, sem hann hafði til að semja úr bókina. Hann hafði haldið dagbók í förinni og safnað ýmsum gripum,, en á heimleiðinni kom eldur upp > skipinu skamt undan Islandi, og varð fáu bjargað. Hooker hélt aðeins eftir nokkuru af dagbók sinni, og náði sá kafh yfir lítið meira en fjórar fyrstu vikurnar, sem hann var á Islandi1). Auk þess náðist úr eldinum íslenzkur brúðarbúning- ur, sem hann hafði eignazt, en alt annað týndist, minnisgrein- ar, jurtir, bækur, teikningar, steinar og fleira slíkt. Hooker varð því að reiða sig á minni sitt um margt, er hann samdi bók sína, en það er bót í máli, að hann mun hafa tekið til við hana jafnskjótt og hann var kominn heim. ]oseph Banks léði honum dagbók frá sinni ferð (1772) í handriti og ýn>s skilríki önnur, svo og myndir af landslagi, búningum o. fl., er 1) Hann haföi verið þar fjórar vikur 19. júlí, og er þess að vasnta, að betur sé treystandi á þann hluta bókarinnar, sem ræðir um það sem höfundur sá fyrir þann tíma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.