Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 56

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 56
152 W. A. CRAIGIE EIMREIÐlN eftir hljóðfræði og kendi hann Craigie mikið í þeirri grein, enda má geta sér þess til, að sú kensla hafi ekki verið neitt þrautaverk. í hans höndum var það sem Craigie sá fyrsta heftið af Oxford orðabókinni er hún byrjaði að koma út 1884, en fráleitt hefur hann þá órað fyrir því, að við þá bók mundi hans eigið nafn verða órjúfanlega tengt um ókomnar aldir. Allan þenna tíma hélzt áhugi hans fyrir gelskunni, enda skorti þar ekki hvatningu frá elzta bróður hans, James Craigie, sem numið hafði þá tungu til hlítar, bæði bóklega og með því sð umgangast Hálendinga er hana töluðu. Eftir að Craigie hafði náð svo langt, að svara mundi til stúdentsprófs hjá okkur, hélt hann áfram námi við háskólann í St. Andrews. Auk hinna reglulegu námsgreina las hann nu af kappi fornskozkar bókmentir, sem hann átti greiðan að- gang að í bókasafni háskólans, og hélt hann því stöðugt á- fram meðan hann var í háskólanum. Af þeim átta handritum, sem til eru af Wyntouns Orpgpnale Cronykil of Scotland, er eitt þar í háskólabókasafninu, og með rannsóknum sínum a því síðasta námsvetur sinn við háskólann (1887—8) uppgÖtv- aði Craigie fyrstur manna hvernig þetta rit var til orðið- Chronicle þessi er saga Skotlands í bundnu máli frá yz*u forneskju til þess er Jakob I. erfði ríkið 1406. Hún er hið mesta bákn og hefur alveg ómetanlegt málfræðisgildi auk þess sem hún er merkileg söguheimild eftir að sannsögulegir tímar taka við. Sama veturinn lærði Craigie einnig þýzku, en þa var öðruvísi ástatt um nám nýju málanna en nú er, og varð hann að leggja það á sig að sækja kensluna til Dundee úr sjálfri háskólaborginni. Er það 15 mílna (25 km.) járnbrautar- ferð, sem tók hann hálfa aðra klukkustund hvora leið. Mundi sumum hafa þótt það full-langur skólavegur og einhverntíma látið kenslustund úr falla. í Dundee lærði hann einnig frönsku og aðallega á Revue des deux mondes, sem lá frammi a lestrarsal alþýðubókasafnins þar. Við háskólann voru aðalmálin gríska og latína, og lagði Craigie hina mestu alúð við bæði- Sem dæmi um skarpskygni hans má geta þess, að mælt er, að þá tæki hann eftir því einkenni á síðustu bókinni af Lýð- riki Platós, sem sannaði það endanlega, að ritið væri réttilega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.