Eimreiðin - 01.04.1927, Síða 96
192 FUNDABÓK FJÖLNISFÉLAGS eimreiðin
mind Jónasar heitins 0 framanvið kvæði hans,1 2) ef hún yrði
löguð svo að þeim þætti hún notandi, og fjellust menn því á
að slá af að taka hana í Fjölni. Gísli Magnússon lofaði að
koma með sögu um ránið á Vestmannaeyjum á næsta fund
ef mönnum þætti ráðlegt að láta prenta hana með dálitlum
breitingum.3) Ymsir af fjelagsmönnum lofuðu að hreinskrifa
smáritgjörðir sem til eru eptir Jónas heitinn, og koma með
þau á næsta fund. Mönnum kom saman um að hafa fund
aptur á föstudaginn kemur kl. 7. Þvínæst sleit forseti fundi.
H. K. Fridriksson. Konráð Gíslason. G. Thorarensen.
J. Þórðarson. Glgr. Þórðarson. St. Helgason. J. Guðmundsson.
E. Jónsson. Gísli Gíslason. B. Gröndal. G. Magnússon
Br. Pjeturson. Br. Snorrason.
[3. fundur 1847]
Föstudaginn þann 5~ Febrúar var fundur haldinn; 10 vóru
á fundi. Forseti sagðist hafa fengið brjef frá Eiríki Jónssyni
þess efnis, að hann vildi ei vera í fjelaginu þetta árið. Brynj-
ólfur Pjetursson las upp sögubrot eptir Jónas heitinn (»Grasa-
ferðin«) og var hún tekin með öllum atkvæðum.4) Þvínæst
las hann upp annað sögukorn (orðlofsferðin) úr gamanbrjefi
frá Jónasi heitnum til kunningja hans í Kaupmannahöfn, og
var hún og tekin með öllum atkvæðum.5) Að því búnu las
Konráð upp brot af Hreiðarshól eptir Jónas heitinn, og var
það tekið með öllum atkvæðum.6) Gísli Magnússon las síðan
upp sögu er Jónas hafði lagt út (Fundurinn) eptir Hebel;
aðra sögu las hann líka upp (Maríubarnið) er suma minnti
að prentuð væri í Nýársgjöf Jóhanns heitins,7) og var hún
1) Sbr. 8. f. 1845 og 1. f. 1846.
2) Sem þeir gáfu út þetta ár.
3) Um þessa „sögu“ sjá Tyrkjaránið á íslandi, bls, 1 og 136.
4) Prentað í 9. árg. Fjölnir, bls. 9—24.
5) Jónas hefur skrifað brjefið í Sórey í byrjun marz-mánaðar 1844
til Konráðs (og Brynjólfs?). Prentað í 9. árg. Fjölnis, bls. 38—41.
6) Prentað í 9. árg. Fjölnis bls. 28—34.
7) Halldórssonar (Kmh. 1841), en sú útlegging, sem þar er prentuð,
«r ekki eptir Jónas.