Eimreiðin - 01.07.1929, Page 24
208
GOÐASTJÓRN
EIMREIÐIN
bréfi til dómstjórans lýst því yfir, að sér hafi ekki, við árs at-
hugun, snúist hugur. Dómstjóri er bundinn þagnarskyldu um
nöfn kjósenda.
7. Á hverjum áramótum tilkynnir dómstjórinn goðunum hve
marga þingmenn þeir hafa mist eÖ3 unnið.
8. Atkvæðaþungi hvers goða á alþingi fer eftir tölu kjós-
enda hans. Hafi fullur helmingur kjósenda landsins sagt sig >
þing með einum goða, ræður hann að lögum úrslitum allra
þingmála.
9. Nú missir goði 2h þingmanna sinna, og er hann þá af
goðorðinu, en annar er kosinn í hans stað.
Jeg geri ráð fyrir, að sumum virðist að þessar einföldu
breytingar á núverandi skipulagi geti tæpast kipt öllu því >
lag, sem fyr er talið, og skal ég því skýra nokkur atriði
nánar.
(Jm kjördæmaskiftinguna eru skiftar skoðanir. Guðm. Finn-
bogason vill gera landið alt að einu kjördæmi, Thor Thors
vill láta taka nákvæmlega tillit til mannfjöldans. Bændur munu
ófúsir til þess að breyta þeirri kjördæmaskipun sem nú er.
í mínum augum skiftir það mestu, að ætíð sé einhver maður
á þingi, sem þekkir hvern landshluta sem er og þarfir hans.
Þá er og annað atriði þýðingarmikið, að allar stéttir, atvinnu-
vegir og þvíl. hafi einhvern málsvara og hann sem færastan
(Ág. H. Bjarnason). Almennar kosningar tryggja þetta tæp-
ast. Til þess þyrftu sérstök ákvæði, t. d. að formenn helztu
stofnana vorra (Búnaðarfél., Fiskifél. o. fl.) og framtaksmestu
einstaklingar skuli sitja á þingi.
Mjög mikið legg ég ekki upp úr því, þó nokkur munur sé
á þeirri kjósendatölu, sem stendur að baki hverjum þingmanni.
En þeir sem kjósa fullan jöfnuð, að þessu leyti, geta vegið
atkvæði þingmanna eftir kjósendatölu. Ef þingmaður á að
koma á hverja 2000 kjósendur, eða svo, verða þeir ekki lengi
að fjölga fram úr öliu hófi, þegar landsmenn fjölga um 1500
á ári hverju.
Æfikjör goðanna er í mínum augum þýðingarmesta atriðið,
en komið getur til tals, að setja þeim ákveðið aldurstakmark.