Eimreiðin - 01.07.1929, Page 112
296
SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR
eimreiðin
markaðinum. Ljósmyndunum, sem fengist hafa, má skifta í
þrjá flokka: 1. Myndir af þuí, sem ekki sést með berum aug-
um, en næst bæði með gler- og kvarz-linsu. 2. Myndir af
því, sem ekki sést með berum augum og ekki næst með
glerlinsu, en aðeins með kvarzlinsunni. 3. Myndir af því, sem
sést með berum augum og einnig næst bæði með glerlinsu
og kvarzlinsu. Loks hefur tekist að sýna fram á með öðrum
tækjum fyrirbrigði í fundaherberginu, sem hvorki hafa sést
með berum augum né náðst á ljósmyndafilmurnar.
Vaxmót. Náðst hafa mörg vaxmót af hægri hönd, sem auð-
sýnilega er af karlmanni. Þessi mót eru gerð undir svo
ströngu eftirliti, að því er fundarmenn fullyrða, að svik geta
ekki komið til greina. Á tímabilinu frá því í ágúst 1926 til
15. apríl 1928 hafa verið tekin sjötíu fingurmót í sérstaka
tegund af vaxi, sem notað er við tannlækningar. Vax þetta
mýkist í heitu vatni, og er mótið þá tekið. Síðan harðnar það>
og helzt þá mótið árum saman. Þessi mót hafa verið tekin
að miðlinum bundnum á höndum og fótum. Öll eru mótín
af sama þumalfingrinum, að fimm mótum undanskildum, "
og aldrei af neinum fundarmanna. Mjög einkennilegt er það>
að fengist hafa svonefnd spegilmót af sjálfum mótunum. Mótin
hafa verið rannsökuð af sérfræðingum við lögregluna 1
Washington, Doston, Berlín, Múnchen, Vínarborg og
Scotland-Vard-lögreglunni í Lundúnum. Úrskurðurinn er
samhljóða hjá öllum: að mótin séu af sama þurnalfingrinum-
Fingurmótafræðingarnir hafa ennfremur upplýst, að við saman-
burð á þumalfingursmóti Walters og þumalfingursmóti af
Margery sé skyldleikinn milli mótanna 45°/o — og að við
samanburð á þumalfingursmóti Walters og þumalfingursmót1
móður Margery, sé skyldleikinn 70°/o. Þessi hlutföll erU
nákvæmlega eins og þau eiga að vera milli bróður og systm"
og sonar og móður.
Við þetta bætist það, að fingurmót Walters Stinson fanst
til samanburðar. Árið 1911 varð Walter Stinson fyrir slysinu,
sem varð honum að bana. Rétt áður en hann fór að heimaa
rakaði hann sig, og var skegghnífurinn, sem hann notaði.
látinn í kistu, er móðir hans átti. Walter var eini karlmaður-
inn á heimilinu, og eftir lát hans var kistan ekki opnuð fVr