Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 118
302
SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR
eimreiðin
brotinu hverju úr þessu eina atriði inn í vitund þriggja
fjarstaddra móttakenda, en það eru þau Margery, Valiantine
og Hardwicke. Og alt gerist þetta á fáeinum mínútum.
I vandræðum sínum að skýra þessu lík fyrirbrigði hafa
sumir komið með tilgátuna um eitthvert ginnungagap vitund-
arinnar, þar sem safnist öll mannleg vitneskja og geymist,
geti svo miðlarnir með sínum sérstöku hæfileikum gengið í
þessa gímu og sótt þangað vizku sína. Jafnvel þótt fallist sé
á þessa tilgátu, svo fráleit sem hún er, þá kemur hún ekki
að haldi hér. Enginn einn maður vissi um öll kortin í kass-
anum. Enginn miðill var viðstaddur, þegar kortið var dregið-
Margery var í tvö hundruð metra fjarlægð. Walter og Margery
eru algerlega aðgreind. Á bak við alla tilraunina frá byrjun
til enda stendur sjálfstæður persónuleiki Walters, sem virðist
haga sér í öllu eins og hugvitssamur maður.
Margery skýrir frá því í ósjálfráðu skriftinni, að »stafur
hafi fallið úr orðinu«. Sá stafur fanst síðar í kassanum. Ekki
gat skrifstofuþjónninn, sem útbjó kortið, vitað þetta, eða nokk-
ur lifandi maður annar. Það gat því ekki komist í vitundar-
gímuna frægu fyr en kassinn var opnaður og kortin skoðuð-
Þó er skýrt frá þessu hjá Margery strax og búið er að draga
kortið. Ennfremur er því lýst yfir hjá Margery, að GreV
dómara sé batnað í fætinum. Sjálfur er Grey dómari h)a
Hardwicke við Niagara Falls, og enginn þar veit um, að hann
hafi meitt sig í öklanum heima hjá Crandon lækni daginn
áður. En »]ohn«, aðstoðari Walters hjá Hardwicke, spyr dóm-
arann um líðan hans og skýrir því nær samstundis frá henn*
austur í Boston. Hin víxlskeytin, sem komið hafa fyrir tilstil 1
Walters, eru í engu ómerkari en þetta.
Um sanngildi fyrirbrigðanna hjá Margery þýðir varla a^
deila. Harla lítil líkindi virðast til þess, að hún hafi leikið a
fundarmenn. Og harla lítil líkindi eru til þess, að fundarmenn
hafi tekið sig saman um að skýra rangt frá fyrirbrigðunum-
Hversvegna ætti að stimpla þessa menn lygara og svika^
fremur en aðra rannsóknamenn? »Lífið er of stutt og vl
höfum altof mikið að gera til þess að taka að okkur að draga
allan heiminn á tálar«, svarar Crandon læknir slíkum ásökun
um. Það sem gerst hefur hjá Margery er sama eðlis og Sers