Eimreiðin - 01.07.1929, Side 25
EIMREIÐIN
GOÐASTJÓRN
209
Ef þeir eru kosnir á venjulegan hátt, tekst auðvitað valið
líkt og venja er til um þingmenn vora, og þeir hafa ætíð
Verið sæmilegt sýnishorn af þjóðinni og það ekki af verri
endanum. Að þingmenn hafi áður verið meiri kostum búnir
en nú gerist, er skáldskapur einn. Hinsvegar er það ekki úti-
lokað, að betur megi tryggja kosningarnar en nú gerist, gera
ákveðnar kröfur bæði til kjósenda og frambjóðenda.
Það fer naumast hjá því, að æfikjörinn þingmaður líti
oðruvísi á starf sitt en þingmenn gera nú, þegar það verður
m>kill hluti af lífsstarfi hans>). Hann hefur meiri hvöt til þess
leggja rækt við það, afla sér þekkingar o. þvíl., en auk
þess hlýtur hann að fá æfingu og leikni í þingstörfum, er
hann situr á mörgum þingum. Að öðru leyti verður afstaða
hans alt önnur en nú og miklu virðulegri. Hann verður sjálf-
slæðari gagnvart kjósendum, flokkum og flokksforingjum og
9etur óhikað farið hrossakaupalaust eftir sinni sannfæringu. Ef
m>kið er í manninn spunnið, verður hann héraðshöfðingi í
orðsins beztu merkingu.
Nú má segja, að eftir sem áður sé goðinn í hershöndum,
Ur því kjósendur hafi leyfi til þess að segja sig úr þingi með
honum, að hann hafi ætíð úrsagnasmala yfir höfði sér. Þetta
mun ekki reynast svo. Það þarf að vera meira en lítið, sem
a milli ber, til þess að goðinn missi 2h þingmanna sinna, og
það er ekki hyggilegt, að svo mikið ósamræmi sé milli hans
°S þeirra. Þá þarf nokkurt framtak og alvöru til þess að
seSÍa sig úr þingi við sinn goða. Þess eru yfirleitt fá dæmi
v'ð þingkosningar, að atkvæðamunur sé 2/3 móti >/3. Til þess
að goði fyrirgeri goðorði sínu hlýtur hann að vera beinlínis
‘ka þokkaður, eða að hafa gert afglöp, og þá á hann engan
relt á sér.
Eftirtektarvert er það, að ýms héruð vor hafa af sjálfsdáð-
Um notað sama þingmann alla æfi, t. d. Þingeyjar- og Skaga-
tjarðarsýsla. Þessir þingmenn hafa staðið framarlega í flokki
h'ngmanna.
1) Fyrir skömmu síÖan flufti „Vörður" grein eftir Jónas Illhugason,
°nda í Brattahlíð, með fyrirsögninni „Nýjar leiðir", og var þar stungið
UPP á, að þingmenn væru kosnir til lífstíðar.